ER ÞARNA KOMIN ÁSTÆÐAN FYRIR UMFJÖLLUN KASTLJÓSSINS?????

Þurfti bara að fá leyfi til innflutnings á eggjum, var kannski ekki svo fráleitt sem Vigdís Hauksdóttir var að segja???  Svo er eins gott að það komi fram að félag eggjaframleiðenda segir að ENGINN eggjaskortur verði vegna þessa máls.....


mbl.is Hætti að hindra innflutning á eggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EKKI BARA VERIÐ UNDIRBÚA ÞAÐ AÐ NÚVERANDI STJÓRN VERÐI TIL VORSINS OG ÞÁ VERÐI KOSIÐ????

ÞÁ ER EINA VITIÐ AÐ KJÓSA AFTUR Í VOR OG LÁTA ÞÁ STARFSSTJÓRN, SEM ER NÚNA STARFA ÞANGAÐ TIL.  Persónulega held ég að það sé bara verið að undirbúa jarðveginn fyrir þetta.  Og kannski fólk verði þá búið að átta sig á alvöru málsins og láti ekki einhver "grínsamtök" sem hafa engin málefni fram að færa og vilja alls ekki og geta ekki borið neina ábyrgð á einu eða neinu, í té atkvæði sitt og pólitíska landslagið fær þá aðeins að jafna sig.  En mikið eru það ánægjulegar fréttir fyrir þjóðina að "Vinstri Hjörðin" skyldi springa í loft upp, kannski var það líka fyrirséð að þetta lið gæti aldrei komið sér saman um eitt eða neitt.  Núna er ekkert eftir nema einhverjar misgáfulegar málamiðlanir og því ekki um neitt annað að ræða en að kjósa aftur í vor og vona að fólk hafi lært af þessu "floppi" núna í haust....


mbl.is Benedikt afþakkaði boð Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG VG VILL AUKA SKATTBYRÐINA ENN MEIRA - FINNST GREINILEGA EKKI NÓG

Og svo hjó ég eftir annarri meinlegri "villu" í þessu; "LEIÐRÉTTING VEGNA LÍFEYRISRÉTTINDA", það er kominn tími til að fólk vakni til meðvitundar um það AÐ Í DAG ERU GREIÐSLUR Í LÍFEYRISSJÓÐI AÐ HLUTA TIL EKKERT ANNAÐ EN LÖGLEGUR ÞJÓFNAÐUR.   Ef horft er til þess að greidd eru 12% í lífeyrissjóð, launamaður, sem hefur ágætis laun um 700.000 þá fara um 84.000 í lífeyrissjóð. en hver skyldu réttindi mannsins vera þegar upp er staðið?  Fær hann núvirði þessara 84.00 króna þegar hann kemst á lífeyrisaldur?  Nei ekki aldeilis, , ég er ekki með nákvæma tölu á því en talan er á bilinu 4-6% fer efti hvaða lífeyrissjóður á í hlut.  Jú það er alltaf verið að skerða réttindin en á sama tíma berast fréttir af því að lífeyrissjóðirnir eigi svo mikið að þeir eru að kaupa upp stóran hluta Íslensks atvinnulífs og eitthvað kostar rekstur lífeyrissjóðanna og þar eru ekki borguð nein hungurlaun og ekki eru forstjórajepparnir neitt af lakara taginu.


mbl.is Skattbyrði á Íslandi sú þriðja mesta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVENÆR TEKUR GRÓÐAHYGGJAN YFIR SKYNSEMI OG UMHYGGJU?

Sjaldan hef ég orðið vitni að jafn slæmum aðbúnaði hjá nokkrum dýrum eins og hjá "Frjálsu ,Hamingjusömu Hænunum" hjá Brúneggi á Teigi í Mosfellsdal og Stafholtsveggjum í Borgarfirði.  Þegar ég var gutti, fyrir löngu síðan, var ég í sveit á bæ í næsta nágrenni við Stafholtsveggi, þá var þar myndarbúskapur og ég veit að ef hann Árni sem bjó þá á Stafholtsveggjum, vissi um þessa meðferð, myndi hann snúa sér marga hringi í gröfinni, því aldrei hefði hann liðið svona lagað.  En tímarnir breytast og mennirnir með.  En það sem mér fannst alvarlegast við þessa umfjöllun er hversu lengi þetta fékk að viðgangast án þess að eitthvað væri gert og að fyrirtækið komst upp með að BLEKKJA neytendur með því að selja þessi egg á TÆPLEGA 40% HÆRRA VERÐI Í MÖRG ÁR án þess að NOKKUÐ VÆRI Á BAK VIÐ ÞESSA VERÐLAGNINGU. Auðvitað keyptu neytendur þessi egg í góðri trú en ábyrgðin á þessum blekkingum er að sjálfsögðu fyrst og fremst hjá fyrirtækinuÞað er mín skoðun að það eigi að svipta þetta fyrirtæki starfsleyfinu og rekstraraðilana ætti að dæma til refsingar fyrir dýraníð og sjá til þess að þeir komi aldrei nálægt svona rekstri aftur.


mbl.is Aldrei verið vistvæn framleiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER EKKERT SEM BENDIR TIL AÐ FJÖLSKYLDUNNI SÉ ÓGNAÐ Á EINN EÐA ANNAN HÁTT Í HEIMALANDINU...

En aftur á móti er það gagnrýnivert að þau skuli hafa verið svona lengi á landinu án þess að tekið hafi verið á þeirra málum.  Og það verður ekki séð að "einhver" eigi að skipta um skoðun í þessu máli.  Þó svo að einhverjir hælisleitendur eignist börn meðan þau dvelja hér á landi, eru börnin ekki sjálfkrafa Íslenskir ríkisborgara, eins og margir virðast halda þó svo að þeir "flaggi" lögfræðimenntun.


mbl.is Réttarstaða fjölskyldunnar óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN HVAR ERU ALLIR SEM KUSU PÍRATA Í HAUST?????

Það er svolítið skrítið til þess að hugsa að hreyfing, sem kennir sig við sjóræningja og utangáttalið, sé að tala um lýðræði og opna stjórnsýslu um leið fer fram kjör á netinu um hvort eigi að veita AFSLÁTT af helsta baráttumáli hreyfingarinnar fyrir kosningar í haust, sem Birgitta Jónsdóttir og co VORU ÞEGAR BÚIN AÐ VEITA AFSLÁTT AF Í STJÓRNARMYNDUNARVIÐRÆÐUM "VINSTRI HJARÐARINNAR" OG VIÐREISNAR. Það er einnig svolítið merkilegt að  244 aðilar skyldu nenna að taka þátt í þessum "sýndarlýðræðisleik" ÞVÍ ÞAÐ VISSU ÞAÐ ALLIR AÐ ÞAÐ VAR ÞEGAR BÚIÐ AÐ TAKA ÁKVÖRÐUN UM MÁLIÐ..............


mbl.is Bannið nú bundið við Pírata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ TÓKST!!!!

Þrátt fyrir að Lewis Hamilton, gerði allt sem hann mögulega gat til þess að Nico Rosberg næði ekki heimsmeistaratitlinum.  Yfirmönnum Mercedes-liðsins var farið að blöskra svo framganga Hamiltons, að þeir skipuðu honum að hleypa Rosberg framúr sér, sem hann gerði ekki og  er spurningin hvernig liðið komi til með að taka á því.  Í það minnsta var Eddie Jordan ekki mjög hrifinn og í viðtali sem hann átti við Toto Wolff stjórnanda Mersedes-liðsins, sem hann tók fyrir channel4, spurði hann hreint út hvað yrði gert Toto vildi ekki gefa svar við spurningunni, en það er ljóst að einhver rekistefna verður.  Enn einu sinni sýndi Max Verstappen að hann er framtíðarmeistari og þrátt fyrir það að hann lennti í óhappi í ræsingunni og bíllinn snérist og hann lenti þá í síðasta sæti, vann hann sig upp og endaði í fjórða sæti sem verður að teljast MJÖÖÖÖG vel gert..................


mbl.is Rosberg heimsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA ER ÞAÐ BARA Á HREINU GLÆPAMENN GETA EKKI REIKNAÐ MEÐ AÐ NJÓTA VERNDAR!!!!

En það er alveg með ólíkindum hvað fólk  innan vissra hópa reynir að halda hlífiskildi yfir þessum glæpamanni.  Þessir sömu aðilar virðast eiga í einhverjum erfiðleikum með að átta sig á því að þegar hann tók gögnin frá NSA ÓFRJÁLSRI HENDI GERÐIST HANN SEKUR UM ÞJÓFNAÐ OG ÞJÓFNAÐUR ER GLÆPUR, það er ekkert hægt að réttlæta þjófnað með því að þetta hafi verið gert í almannaþágu.  Þá er alveg eins hægt að réttlæta bankarán með því að það hafi átt að gefa peningana til fjölskylduhjálparinnar þ.e.a.s ef bankaránið kemst upp og fer fyrir dóm.


mbl.is Hafna beiðni Snowden um framsalsvernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEIR BÍTA HAUSINN AF SKÖMMINNI MEÐ ÞVÍ AÐ "RANGFEÐRA" MANNINN.

Vonandi les mamma hans Friðleifs Einarssonar skipstjóra á Ásbirni, Ekki þessa frétt því sennilega myndi hún berja blaðamanninn , sem skrifaði hana.  En ég veit að hún er hin vænsta manneskja og héldi sennilega aftur af sér.  En svona "subbufréttamennska" er alveg fyrir neðan allar hellur og er algjört lágmark að hann Leifur og allt hans fólk verði beðið afsökunar þessu glappaskoti.


mbl.is Búnir með karfann og reyna við þorsk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU ÞESSIR "STJÓRNMÁLAFRÆÐINGAR" BARA Í SÖGUSKOÐUN????

Þeir segja aldrei nokkurn skapaðan hlut af viti um það sem þeir eru spurðir um en vísa bara í samskonar aðstæður fyrr á tímum.  Nú skilst mér að fjárhagur flestra  fjölmiðla sé  nú frekar slakur svo þeir geta með góðri samvisku sparað sér það að fá stjórnmálafræðinga til skrafs og ráðagerða, því ekki koma þeir fram með ALLA sína visku frítt..


mbl.is „Snjallt útspil hjá forsetanum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERS VEGNA DRÓ HÚN ÞAÐ AÐ SKILA INN UMBOÐINU?????

Auðvitað hefði hún átt að skila umboðinu inn strax eftir að slitnaði upp úr viðræðunum "Vinstri Hjarðarinnar" og Viðreisnar en þarna er þessu liði rétt lýst......


mbl.is Katrín skilar umboðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Frú Klara kirkjuorganisti var á áttræðisaldri og hafði aldrei verið við kynlíf kennd. Alltaf ógift og aldrei í sambúð. Hún var dáð vegna elskulegheita sinna og góðmennsku.  Presturinn kom eitt síðdegi að vori í heimsókn til hennar. Hún bauð  hann velkominn í "meyjarhofið" sitt og vísaði honum til sætis meðan hún tæki til með kaffinu. Þar sem hann sat varð honum litið á gamla pumpuorgelið. Ungi presturinn tók þá eftir fullu vatnsglasi sem stóð á orgelinu. Í vatninu flaut-af öllum hlutum!  SMOKKUR!! Hugsaðu þér sjokk prestsins og undrun! Gerðu þér í hugarlund forvitnina sem hjá honum vaknaði! "Klara gamla hefur áreiðanlega flippað yfir" hugsaði klerkurinn. Í því kom Klara úr eldhúsinu með kaffið og heimabakkelsið. Þau fóru að spjalla um daginn og veginn.  Presturinn reyndi að hafa hemil á forvitni sinni,en að lokum gat hann ekki setið á sér.Frú Klara, sagði hann gætirðu nokkuð sagt mér um þetta? (benti á glasið). Ó já, svaraði Klara gamla. Er þetta ekki dásamlegt? Ég var á gangi niðri í bæ síðastliðið haust, þegar ég fann lítinn pakka á götunni.Leiðbeiningarnar á pakkanum voru svohljóðandi: Settu þetta á "organ", haltu því blautu og þá mun lánið verða með Þér.  Og veistu hvað! Ég hef bara ekki orðið lasin í allan vetur!!


ER ÞETTA STAÐFESTINGIN Á ÞVÍ AÐ KOSIÐ VERÐI AFTUR TIL ALÞINGIS Í VOR??

 ÞÁ ER EINA VITIÐ AÐ KJÓSA AFTUR Í VOR OG LÁTA ÞÁ STARFSSTJÓRN, SEM ER NÚNA STARFA ÞANGAÐ TIL.  Og kannski fólk verði þá búið að átta sig á alvöru málsins og láti ekki einhver "grínsamtök" sem hafa engin málefni fram að færa og vilja alls ekki og geta ekki borið neina ábyrgð á einu eða neinu, í té atkvæði sitt og pólitíska landslagið fær þá aðeins að jafna sig.  En mikið eru það ánægjulegar fréttir fyrir þjóðina að "Vinstri Hjörðin" skyldi springa í loft upp, kannski var það líka fyrirséð að þetta lið gæti aldrei komið sér saman um eitt eða neitt.....


mbl.is Búið að slíta stjórnarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EITTHVAÐ FARIÐ AÐ ÞYKKNA UPP HJÁ "HINUM FIMM FRÆKNU"??

Fyrst átti að nota sem átyllu til skattahækkana (sem er hjartans mál hjá VG) að staða ríkissjóðs hefði verið verri en búist var við en svo hefur komið í ljós að það var bara bull.  En á hverju ætli strandi núna???   Það var svo sem vitað mál að þetta lið gæti ekki orðið sammála um nokkurn hlut nema að sjálfsögðu að vera ósammála um allt...


mbl.is Segir fundinn í dag úrslitafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR ÞAÐ ÞETTA SEM KJÓSENDUR VG VORU AÐ KALLA EFTIR???

Kona sem ég þekki ágætlega og er svo "gallhörð" vinstri manneskja og gerði mikið í því fyrir kosningar í haust að kristna mig til og þá vantaði ekki fjálglegar lýsingar á ágæti VG og hvað þeir myndu gera eftir kosningarNú er hún ekki jafn sannfærð um ágæti og heilindi VGSkyldi eitthvað fleira eiga eftir að koma í ljós?  ÞEIM FJÖLGAR STÖÐUGT Í ÞEIM HÓP SEM TELJA AÐ KOSNINGAR TIL ALÞINGIS VERÐI NÆSTA VOR.........


mbl.is VG vill stórfelldar skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FORSETAKOSNINGARNAR Í USA ERU LÖNGU BÚNAR - GETA MENN EKKI SÆTT SIG VIÐ ÚRSLITIN?

Fjölmiðlar japla endalaust á því að Hillary hafi fengið fleiri atkvæði.  Kosningakerfið í USA gengur út á það hver tryggir sér flesta kjörmenn og því vegur atkvæðamagnið ekki eins þungt og í því kosningakerfi sem við þekkjum.  En menn verða bara að fara að viðurkenna úrslit kosninganna og hætta að birta svona "ekki fréttir"....


mbl.is Forskot Clinton eykst enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI LÍTUR ÞAÐ VEL ÚT

Með "Vinstri Hjörðina" eins og hún leggur sig, þar sem hver höndin er upp á móti annarri og svo til að bæta gráu ofan á svart, þá á að bæta Viðreisn við samkrullið.  Það getur ekki nokkur mannlegur máttur haldið þessu liði saman.


mbl.is Ákvörðun liggi fyrir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ VERÐUR ÞÁ UM HINA "ÓFRÁVÍKJANLEGU KRÖFU" PÍRATA????

Eða verður hún eins og allt annað hjá Pírötum UMSEMJANLEG.  Píratar sögðu að það væri ófrávíkjanleg krafa þeirra að ráðherrar ættu ekki sæti á AlþingiÆtli verði gengið hart fram í þessu? Verður þetta samskonar svikamilla eins og þegar VG fór í ríkisstjórn árið 2009 og sveik ALLT sem þeir höfðu lofað og meira til, fyrir að vera með í ríkisstjórn og nokkra ráðherrastóla?????


mbl.is Gott hljóð í fundarmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"SMÁ GÖNGUTÚR Í GÓÐA VEÐRINU" OG KANNSKI ÆTLAÐ AÐ SLÁ TVÆR FLUGUR Í EINU HÖGGI OG SKOÐA NORÐURLJÓSIN Í LEIÐINNI

Þetta er það "steiktasta" sem hefur frést af.  Svei mér þá ég hélt að engum heilvita manni gæti dottið svona lagað í hug og alls ekki á þessum árstíma.  Er fólk virkilega komið svona algjörlega úr "takti" við náttúruna?


mbl.is Ætlaði að ganga heim á Höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SJÓMANNAFORYSTAN ER OG HEFUR VERIÐ MEÐ ÖLLU HANDÓNÝT......

Fyrir utan það að lög séu sett á verkfall sjómanna, er þetta saga þeirra; SAMSTAÐAN ER ENGIN OG HEFUR ALDREI VERIÐ.  Það vantar ekki að forystusveit sjómanna er með hástemmdar yfirlýsingar í fjölmiðlum en þegar þeir sitja á móti útgerðarmönnum, við samningaborðið þá "lyppast" þeir niður og bíða þess að þeir verði mótaðir til eftir hugmyndum útgerðarmanna og stóru  yfirlýsingarnar verða eftir á skrifstofunni eða heima, þeir semja upp á eitthvað "skittimoj" og segja að lengra hafi ekki verið hægt að komast.  Svo er bara treyst á það að sjómenn verði búnir að gleyma frammistöðu þeirra næst þegar verður samið.  Kannski væri best að hætta með hlutaskiptin og sjómenn yrðu á tímakaupi en sjálfsagt myndi sjómannaforystan láta taka sig ósmurt í ra...... með það eins og annað.  Oft velta menn fyrir sér fyrir hverja sjómannaforystan sé að vinna?


mbl.is „Ekki pappírsins virði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband