Færsluflokkur: Bloggar

HVAÐ SKYLDI HAFA ORÐIÐ UM "GLÓPA" HLÝNUNINA AF MANNAVÖLDUM???????

Getur verið að einhverjum detti í hug að kannski ætti að skoða færslu segulpólanna og athuga hvort ekki geti verið að þar séu áhrifavaldarnir að mestu komnir????????


mbl.is Fimbulkuldi í Skandinavíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÁRAMÓTAKVEÐJA........

Óska öllum nær og fjær gleðilegs árs og megi nýtt ár færa öllum gleði, hamingju og frið.  Þá vil ég þakka öllum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða og vonandi verða þau svipuð á nýu ári....... 

 


JÓLAKVEÐJUR.......

Bestu óskir til allra sem ég þekki um Gleðileg Jól og farsæld á komandi ári og allra sem hafa komið hér við á blogginu hvort sem þeir hafa skilið eftir athugasemdir eða ekki....Bestu óskir til allra sem ég þekki um Gleðileg Jól og farsæld á komandi ári og allra sem hafa komið hér við á blogginu hvort sem þeir hafa skilið eftir athugasemdir eða ekki....


SKÍTT AÐ ÞAÐ SKULI BARA VERA EINN SEM ÞORIR AÐ HAFA SJÁLFSTÆÐA SKOÐUN ÞARNA....

Það er bara virkileg dapurlegt að það skuli ekki vera fleiri sem þora gegn "hallelúja"-kórnum.  Enda hafa ENGIN gögn verið lögð fram sem sýna framá hlýnun af mannavöldum..........

 


mbl.is Forseti COP28 sagður afneita hlýnun jarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSIR VILLIMENN NOTAST VIÐ SÖMU AÐFERÐAFRÆÐI Í SÍNUM "AÐGERÐUM" OG ÞEIR GERÐU ÁRIÐ 1627 - SENNILEGA HEFUR "KLUKKAN" STOPPAÐ HJÁ ÞEIM Á MIÐÖLDUM.....

Þessir tveir höfundar, Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols, hafa skrifað fjórar bækur um "Tyrkjaránin" og gera þeim atburðum mjög góð skil á Íslandi og eru þær allar á Ensku.  Um þessa atburði hefur ekki mikið verið fjallað um og það er skammarlega lítið fjallað um þessa atburði í sögu okkar og annálum yfirleitt.  Margir tengja þessa atburði við Vestmannaeyjar en fáir virðast vita að "Tyrkjaránin" hófust á Austfjörðum og þaðan var  flestu fólki rænt og SÍÐAN var siglt til Vestmannaeyja og skipið "fyllt"þar af þrælum.  Þá fór annað skip til Grindavíkur og gerði "strandhögg" þaðan var mörgu fólki rænt og var það fólk selt í þrældóm í Sale í Marakkó.  Aftur á móti vor Austfirðingarnir og Vestmannaeyingarnir fluttir til Algeirsborgar í Alsír og seldir á markaði þar.  Það sem maður verður fyrst var við þegar les þessar bækur er að vinnubrögð þessara villimanna eru alveg eins og þau voru 1627, það er að koma væntanlegum fórnarlömbum að óvörum, villa á sér heimildir fram á síðustu stundu, sigla undir fölsku flaggi, höggva börn og gamalmenni, brenna fólk inni og svona mætti lengi telja.  ÞETTA STYÐUR "BAKBORÐSLAGSÍÐULIÐIÐ" Á ÍSLANDI OG FLEIRI.

Fyrsta bókin sem þeir sendu frá sér var "THE TRAVELS OF REVEREND ÓLAFUR EGILSSON", (Þessi bók var upphaflega gefin út af Fjölva 2008 og svo endurútgefin af Sögu Akademíu 2019). Þessi bók hefst að sjálfsögðu á "Tyrkjaráninu" í Vestmannnaeyjum árið 1627 og síðan er siglingunni til Algeirsborgar lýst og lífinu þar.  Stærsti hluti bókarinnar fjallar um ferðalag séra Ólafs Egilssonar frá Algeirsborg til Danmerkur, sem hann fór fótgangandi.  Skal þess getið að þarna er um að ræða langbestu skriflegu heimil sem til er um borgir og bæi og lifnaðarhætti í Evrópskum bæjum og borgum á þessum  tíma.
Önnur bókin frá þeim er svo "NORTHERN CAPTIVES (Bókin var gefin út af Sögu Akademíu árið 2020).  Bókin fjallar um "Tyrkjránið" í Grindavík en málið er að það var farið með Grindvíkingana til Salé í Marocco þar sem fólkið var selt í þrældóm á þrælamarkaði þar í bæ og svo er sagt frá afdrifum þeirra sem eru  þekkt.  Í þessari bók er mikið af kortum og myndum af skjölum og bréfum sem tengjast þessum atburðum.
Þriðja bókin sem kom út var "STOLEN LIVES" (þessi bók var gefin út af Sögu Akademíu árið 2021).  Bókin fjallar um "Tyrkjaránið" í Vestmannaeyjum, siglinguna til Algeirsborgar og síðast en ekki síst AFDRIF þeirra sem rænt var.  Í bókinni er mikið af kortum og myndir af mörgum skjölum sem tengjast þessum atburði.
Fjórða bókin heitir svo "ENSLAVED".(Bókin var gefin út af Sögu Akademíu árið 2022)  Bókin fjallar um "Tyrkjaránið" á Austjörðum, sem því miður virðist að mestu "gleymdur" atburður í hugum landsmanna og lítið komið fram um það nema óstaðfestar þjóðsögur.  En í þessu ráni var flestum Íslendingum rænt og síðan var siglt til Vestmannaeyja og skipið var FYLLT þar.  Og að mínum dómi var konn tími til að  þessum atburðum þar yrðu gerð almennileg skil í bók hér á landi.  Það sama er í þessari bók, reynt er að fylgja eftir afdrifum þeirra sem í þessu lentu og þarna eru kort og myndir sem tengjast atburðunum.

Fimmta bókin kom svo út nýlega og heitir hún "TURBULENT TIMES".(Hún var gefin út af Sögu Akademíu árið 2023).  Ég verð að viðurkenna það að ég er bara búinn að  lesa um 1/3 af bókinni en hún fjallar að mestu um þátt Skálholtsstaðar í að halda þessum atburðum til haga meðal annars með því að geyma öll þekkt gögn sem varða þessa atburði.  Reyndar er svo margt sem kemr fram í þessari bók sem ég hafði ekki hugmynd um og verð ég að segja að þessi bók kom mér mikið á óvart.

Árið 2027 stendur til að haldin verði í Vestmannaeyjum mikil hátíð til að minnast þess að 400 ár verða liðin frá "Tyrkjaránunum" hér á landi og veit ég af því að bæði Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols taka þar virkan þátt ef GUÐ lofar........  


VIÐ HVERJU GETUR MAÐUR BÚIST??????

Síðustu daga hafa jarðskjálftarnir verið fremur harðir og snarir hér á Ásbrú og í gær keyrði alveg um þverbak, það má segja gærdagurinn hafi verið alveg ein samfellt skjálftahrina og svona milli átta og níu í gærkvöldi datt skjálftavirkin eiginlega alveg niður en svo um miðnætti byrjaði aftur að koma einn og einn skjálfti.  En rétt fyrir klukkan fimm í nótt kom svo jarðskjálfti gjörólíkur öllum jarðskjálftum, sem ég hef orðið var við í þessari hrinu, sá var mjög hægur  og ruggaði manni bara til í rólegheitunum, það var engu líkara en maður væri um borð í bát sem vaggaði þægilega við bryggju.  ÞÁ HÉLT ÉG AР MYNDI BYRJA GOS Í KJÖLFARIÐ, EN SEM BETUR FER VARÐ ÞAÐ EKKI......


mbl.is Hafa áhyggjur af virkni suðvestur af Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG FÓLK MÆTIR UMVÖRPUM Á AUSTURVÖLL TIL AÐ SÝNA STUÐNING VIÐ HAMAS Í VERKI....

Er ekki full ástæða til að glæpir þessara villimanna séu afhjúpaðir og að stuðningsmenn þeirra hér á Íslandi (Ísland - Palestína (Ísland - Hamas)) hætti að "breiða" yfir GLÆPAVERK þessara villimanna og svo að ljúga fólk til stuðnings við þá?  Fyrir nokkrum dögum féll einn Hamas liði í skotbardaga við Ísraelska hermenn.  Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að á síma hins fallna hryðjuverkamanns fundust nokkur MJÖG ÓHUGNANLEG MYNDBÖND, sem voru tekin þann 7. október 2023, ekki er hægt að gera ráð  fyrir að þessi aðili geti hafa tekið þátt í öllum þeim óhæfuverkum sem voru á símanum heldur virðist vera að hryðjuverkamennirnir hafi deilt þessu sín á milli.  Einhver af þessum myndböndum hafa ratað inn á You Tube meðal annars er þarna myndband af þegar kornabarn er tekið, sett í ofnskúffu og síðan er ofnskúffan ásamt barninu sett inn í bakarofn.  Það er einnig sýnt frá "SLÁTRUNINNI" á tónlistarhátíðinni, en þar var sýnt þegar fólk var tekið og höggvið af því útlimirnir jafnvel voru plokkuð úr fólki augun sumir voru  skildir eftir og þeim blæddi út en aðrir voru drepnir.  ER ÞAÐ SVONA LAGAÐ SEM VIÐ EIGUM AÐ STYÐJA SKILYRÐISLAUST???????


mbl.is Drápu alla sem á vegi þeirra urðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ERU SVONA FRÉTTIR SEM AFHJÚPA HVERS KONAR VILLIMENN ÞESSI HAMAS LIÐAR ERU......

En samt sem áður njóta þessir villimenn víðtæks stuðnings, bæði hér á landi og á vesturlöndunum og er sá stuðningur hjá "BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐINU" og meira að segja gengur þetta "heiladauða" lið svo langt að það stofna samtök til stuðning sessum villimönnum og til að slá ryki í augun á venjulegu fólLi eru samtökin skírð Ísland - Palestína en að sjálfsögðu ættu þau  að heita Ísland - Hamas og fylgja ætti með "RAUNVERULEGUR" tilgangur þeirra.  Er ekki helsta ástæðan fyrir þessu  mikla mannfalli á Gaza sú að almennir borgarar FÁ EKKI AÐ YFIRGEFA SVÆÐIÐ????????


mbl.is Hamas loka á fólksflutninga til Egyptalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEÐ ÖÐRUM ORÐUM: ÞESSI DÓMUR ER SVONA HÁLFGERÐUR "SAMKVÆMISLEIKUR" OG ER MEÐ ÖLLU MARKLAUS......

En "GÓÐA FÓLKIÐ" fagnaði alveg óskaplega og lét eins og þarna væri á ferðinni hinn eini stóri sannleikur.  En segir þetta okkur ekki líka að "sumar" Alþjóðlegar stofnanir hafa ekki svo mikið gildi á alþjóðavettvangi og eru bara stórlega ofmetnar?  KANNSKI VEITTI EKKERT AF SMÁ "TILTEKT" Á ÞESSUM VETTVANGI????????


mbl.is Regla 39 notuð í undantekningartilfellum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á EINHVER SKILYRÐISLAUSAN RÉTT Á ÞVÍ AÐ FÁ VERND HÉR Á LANDI????

En samkvæmt öllum helstu fjölmiðlum hér á landi virðist svo vera.  ER EKKI TÍMI TIL KOMINN AÐ ÞESSI MÁL VERÐI ENDURSKOÐUÐ ALVEG FRÁ GRUNNI OG ÞAÐ ÞARF AÐ KOMA EINHVERJU "SKIKKI" Á ÞESSI MÁL.  Það er bara einfaldlega þannig að ENGINN AF ÞESSUM MÖNNUM KOM FYRST TIL ÍSLANDS Á FLÓTTA SÍNUM FRÁ HEIMALANDINU OG AFDRIF ÞESSA FÓLKS KEMUR OKKUR EKKI VIÐ AÐ NEINU LEITI.....


mbl.is Efna til hungurverkfalls í tjöldum í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband