ÞAÐ ER BARA AFSKAPLEGA FÁTT SEM KEMUR Í VEG FYRIR KOSNINGAR Í VOR......

ÞÁ ER EINA VITIÐ AÐ KJÓSA AFTUR Í VOR OG LÁTA ÞÁ STARFSSTJÓRN, SEM ER NÚNA STARFA ÞANGAÐ TIL.  Persónulega held ég að það sé bara verið að undirbúa jarðveginn fyrir þetta.  Og kannski fólk verði þá búið að átta sig á alvöru málsins og láti ekki einhver "grínsamtök" sem hafa engin málefni fram að færa og vilja alls ekki og geta ekki borið neina ábyrgð á einu eða neinu, í té atkvæði sitt og pólitíska landslagið fær þá aðeins að jafna sig.  En mikið eru það ánægjulegar fréttir fyrir þjóðina að "Vinstri Hjörðin" skyldi springa í loft upp, kannski var það líka fyrirséð að þetta lið gæti aldrei komið sér saman um eitt eða neitt.  Núna er ekkert eftir nema einhverjar misgáfulegar málamiðlanir og því ekki um neitt annað að ræða en að kjósa aftur í vor og vona að fólk hafi lært af þessu "floppi" núna í haust.Þetta þýðir líka að ef núverandi ríkisstjórn, verður starfandi þar til verður kosið, þá þurfa þessir sjö flokkar og flokksbrot sem eru á þingi núna, að vera samtaka um að verja ríkisstjórnina fyrir vantrausti...


mbl.is Viðræðum Bjarna og Katrínar slitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. desember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband