ER EKKI Í LAGI MEÐ MANNINN?????????????

" „Mesti titr­ing­ur­inn og áhyggj­urn­ar vegna komu Costco eru ekki í dag­vöru­búðunum held­ur á fjár­mála­markaði,“ seg­ir Ómar".  Að láta svona lagað frá sér fara er alveg út í hött. Gerir maðurinn sér ekki grein fyrir því að það er innkoma Costco á markaðinn, sem gerir það að verkum að hlutabréf Haga lækka svona mikið og heldur hann virkilega að áhrifin á smávöruverslunina séu óveruleg?  EN SVO ER NOKKUÐ FRÓÐLEGT FYRIR OKKUR NEYTENDUR AÐ SKOÐA VIÐBRÖGÐ SMÁSÖLUVERSLUNARINNAR VIÐ ÞESSARI SAMKEPPNI Á MARKAÐNUM.  EKKI HEFUR ÞESSUM "FUGLUM" DOTTIÐ Í HUG AÐ LÆKKA HJÁ SÉR VÖRUVERÐIÐ, NEMA Í ÖRFÁUM TILFELLUM, HELDUR ER VERIÐ AÐ REYNA AÐ KAUPA UPP AÐRAR KEÐJUR (SAMANBER ÞEGAR HAGAR ÆTLUÐU AÐ KAUPA LYFJU.  OG HVERNIG ÁTTI AÐ FJÁRMAGNA ÞAU KAUP?).  HVERNIG ÁTTI ÞAÐ AÐ KOMA NEYTENDUM TIL GÓÐA Í AUKINNI SAMKEPPNI?


mbl.is Costco á við stærstu búðirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Maður nokkur var í leigubíl og pikkaði í öxlina á bílstjóranum til þess að spyrja hann spurningar.  Leigubílstjórinn öskraði upp yfir sig, missti stjórn á bílnum, var næstum búinn að keyra í veg fyrir strætó, fór upp á gangstétt og stoppaði örfáum sentímetrum frá búðarglugga.  Í nokkrar sekúndur er allt hljótt í bílnum.  Síðan segir bílstjórinn: “Heyrðu félagi, þetta skaltu aldrei gera aftur.  Þú hræddir næstum úr mér líftóruna!”.  Farþeganum var illa brugðið en sagði að lokum: “Fyrirgefðu ég vissi ekki að smápikk í öxlina myndi valda þessum viðbrögðum”.“Æ fyrirgefðu”, sagði bílstjórinn “Þetta var nú reyndar ekki þín sök.  Í dag er fyrsti dagurinn hjá mér sem leigubílstjóri, ég er búinn að keyra líkbíl í 25 ár”.


Bloggfærslur 11. ágúst 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband