MEÐ ÖÐRUM ORÐUM: "VAXTAOKRIÐ HELDUR ÁFRAM"......

Og miðað við tilkynninguna frá Peningastefnunefnd verður ekki annað áætlað en að héðan af eigi stýrivextirnir BARA EFTIR AÐ HÆKKA sem þýðir ekki annað en það að enn einu sinni á að færa ENN MEIRA fjármagn til fjármagnseigenda með því að láta almenning borga brúsann og þá sérstaklega unga fólkið sem kemur til með að skuldsetja sig meira í þeirri veiku von að eignast þak yfir höfuðið og geta framfleytt fjölskyldunni á sómasamlegan hátt.  En með hækkandi vöxtum verður það alltaf erfiðara og spurningin er hvar þolmörkin eru?  Eins og flestir vita þá erum við á TOPPI hagsveiflurnar um þessar mundir og héðan af á leiðin bara eftir að liggja NIÐUR Á VIÐ, ferðamönnum er farið að fækka, þeir stoppa styttra við en þeir gerðu, ferðamáti þeirra hefur breyst, þeir kaupa minna en áður, þeir kaupa matvöru og þess háttar og elda sjálfir í stað þess að borða á veitingastöðum, afurðaverð hefur LÆKKAÐ mikið vegna gengisstyrkingar.  Húsnæðisverðið og verðlagið á leigumarkaðnum er svo alveg sérstakur kafli og er von að spurt sé: "HVER ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ LÍFEYRISSJÓÐIR LANDSINS VILJI EKKI LÁNA FÉLAGSMÖNNUM SÍNUM TIL AÐ FJÁRFESTA Í HÚSNÆÐI EN Á SAMA TÍMA LÁNA ÞEIR TIL LEIGUFÉLAGA (SEM ÞEIR ERU LÍKA EIGENDUR Í) OG STUÐLA ÞANNIG AÐ ÓEÐLILEGA HÁU LEIGUVERÐI Á LANDINU"???


mbl.is Stýrivextir áfram 4,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. ágúst 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband