GUNNAR SMÁRI EGILSSON

Áðan var ég að hlusta á viðtal Péturs Gunnlaugssonar við Gunnar Smára Egilsson, formann framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, viðtalið var á Útvarpi Sögu.  Það var ekki nóg með að bullið í honum Gunnari Smára gengi alveg fram af mér, þar sem hann reyndi af mikilli örvæntingu og mjög litlum sannfæringarkrafti að verja stjórnmálastefnu sem hefur ALDREI VIRKAÐ og gekk sér endanlega til húðar fyrir um 40 árum og meira að segja Kína hefur að mestu leiti kastað megninu af þessari stefnu.  Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Ekki myndi ég kaupa notaðan bíl af þessum manni........


Bloggfærslur 4. desember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband