LÝÐRÆÐIÐ VIRKAR MJÖG MISJAFNLEGA..........

Það er talað mikið um að hinn og þessi þjóðarleiðtoginn hafi fengið "RÚSSNESKA KOSNINGU" hérna á VESTURLÖNDUNUM og fjölmiðlar eru ansi iðnir við að fjalla um þetta og þá sérstaklega í löndum þar sem "lýðræði" fellur ekki alveg að hugmyndum "RÉTTTRÚNAÐARLIÐSINS".  Nú eru nýlega afstaðnar forsetakosningar í Hvíta Rússlandi, þar sem sitjandi forseti fékk "RÚSSNESKA KOSNINGU".  Hvort hann eða stuðningsmenn hans hafi haft RANGT VIÐ í kosningunum ætla ég ekki að fjalla um hér, en hann var kjörinn með 80% atkvæða og segja "lýðræðissinnar" að það geti EKKI ÁTTSÉR STAÐ Í LÝÐRÆÐISRÍKI AÐ ANNAR AÐILINN VINNI KOSNINGAR MEÐ SVO MIKLUM MUN.  Ég veit ekki betur en að forsetakosningar hafi verið hér á landi í júní síðastliðnum þar sem sitjandi forseti fékk 90% ATKVÆÐA (RÚSSNESKA KOSNINGU) OG VIRÐIST ENGUM FINNAST NEITT ATHUGAVERT VIÐ ÞAÐ.  Og hafa ýmsir tjáð sig um að ekki hefði verið staðið eðlilega að aðdraganda og framkvæmd kosninganna en fjölmiðla hér á landi fjalla ekkert um það.  Miðað við alla þá sem ég hef verið í sambandi við (nokkur hundruð manns), eru  aðeins örfáir sem viðurkenna að þeir hafi kosið núverandi forseta.  En kannski er "lýðræðið" bara túlkunaratriði hjá "RÉTTTRÚNAÐARLIÐINU" og frekar léttvægt það sem það hefur "HREIÐRAÐ UM SIG"?????


mbl.is Mótmæli gegn Lúkasjenkó halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. desember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband