KEMUR EKKI Á ÓVART!!!!!!!!

Fremur en annað sem frá Noregi kemur þeir (norðmenn) hafa löngum hagað seglum eftir vindi og nú er greinilegt að þeir þurfa eitthvað að sækja til Breta.
mbl.is Bíða með að lána Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Gleðilegt ár Jóhann!

Finnst með ólíkindum hvernig fólk talar um Norðmenn. Veit ekki betur en að þúsundir íslendinga sé þar við störf, og ég þar með talinn.

Hef ekki orðið var við neitt annað en velvilja og samkennd fólks Þar í okkar garð.

Skil ekki þessa þörf fyrir þetta skítkast, sem á sennilega sínar rætur í því að þeir EINS OG VIÐ reyna að verja sínar fiskveiðiauðlindir. Við myndum ekkert gera það öðruvísi en þeir.

Þeir hafa farið vel með sitt og skiljanlega lána þeir ekki inn í umhverfi sem enginn getur hent reiður á.

Við þurfum að taka til í þessu samfélagi okkar, og gera almennilega hreint. Gamla Ísland virðist enn lifa þarna undir niðri. 2007 liðið er enn að!

Einar Örn Einarsson, 6.1.2010 kl. 12:25

2 identicon

Þetta gengur allt einfaldlega út á kalda hagsmuni ríkisstjórnar Noregs, hvort sem almenningur þar hefur samúð með málstað okkar eða ekki. Hvort ætli norðmenn hafi meiri viðskiptahagsmuni af viðskiptum við Íslandi eða Bretlandi? Svarið liggur í augum uppi!

Steingrímur (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 12:31

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ég verð nú að vera sammála Einari hér fyrir ofan - kann norðmönnum bara góða söguna - sigldi talsvert þarna í "gamla" daga og þeir reindust okkur bara vel - hef síðar átt í viðskiptum við norðmenn og bara gott eitt um þá að segja

Jón Snæbjörnsson, 6.1.2010 kl. 12:32

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Blessaður Einar og gleðilegt ár og bestu þakkir fyrir gömlu árin.  Ég má nú reyndar ekki vera að því að útskýra þetta "skítkast" mitt út í norðmenn því ég er að fara á jarðarför og kann því illa að verða seinn en ég skal gera grein fyrir þessum skrifum í kvöld.

Jóhann Elíasson, 6.1.2010 kl. 12:34

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Jóhann hefur eflaust eithvað til síns máls

Jón Snæbjörnsson, 6.1.2010 kl. 12:57

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef þeir ætla að hunsa aðstoð við okkur á ögurstundu eru þeir hvorki frændur okkar né vinir, þá er verið að tala um ríkisstjórn og ráðamenn en ekki almenning, sem sést vel hér hjá okkur að er allt annað um að ræða.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.1.2010 kl. 13:21

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Komdu sæll aftur Einar!

Eins og ég lofaði fyrr í dag ætla ég að útskýra þau ummæli sem ég hafði um norðmenn í blogginu.  Það skal tekið fram að ég hef haft afskaplega GÓÐ samskipti við almenning í Noregi gagnrýni mín beinist að stjórnvöldum og RÁÐANDI öflum í Noregi.  Eins og þér er kunnugt um þá stundaði ég nám í Noregi og hluti af náminu var að læra um Norskt þjóðfélag, samneysluna og hvernig stjórnskipun þar er uppbyggð og hverjar boðleiðir þjóðfélagsins eru.  Það kom mér mest á óvart hversu MIÐSTÝRINGIN er mikil og upplýsingar eru af skornum skammti og eru lítils metnar á öllum stigum þjóðfélagsins.  Það eru ekki mjög margir áratugir síðan Noregur var fátækt bændasamfélag og hinn skyndilegi olíuauður þeirra hefur að mörgu leiti gert það að verkum að þeim hefur ekki tekist nógu og vel að laga sig að breyttum aðstæðum.                

Eitt sem ég gerði þarna var að lesa norska þýðingu á Íslendingasögunum, þar varð ég vitni að einhverri mestu sögufölsun sem um getur:

  • T.d í Njálu, þar er hvergi nokkurs staðar minnst á Ísland og að þar eigi sögurnar uppruna sinn, Hlíðarendi í Fljótshlíð gæti alveg eins verið bær í vestur Noregi og svona mætti lengi telja.  Lengi hefur verið um það deild hvort Norðmenn séu hreinlega að reyna að stela hinum Íslenska menningararfi.
  • Í ÖLLUM sögubókum, sem kenndar eru í Norskum skólum, voru það Norðmenn sem fundu bæði Grænland og Ameríku (Vínland hið góða). Þar er ekki minnst á Ísland.
  • Íslenska er ekki til heldur heitir hún í Noregi "GAMMEL NORSK".  Er það eitthvað svipað og Gammel Dansk?
  • Í milliríkjadeilum verður ekki horft framhjá því að Noregur hefur alltaf stutt þann aðila sem er að þeirra mati stærri og líklegri til áhrifa.
  • Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér hvort Norðmenn studdu okkur í þorskastríðinu, en ég man ekki eftir einu einasta máli þar sem við höfum fengið afdráttarlausan stuðning frá þeim.
  • Ekki hafa þeir gert neina samninga við okkur án þess að þeir komi með ósanngjarnar kröfur og ekki hafa þeir viljað hvika frá þeim.

Ég gæti haldið áfram í alla nótt þess vegna en læt þetta duga í bili.  Áður en ég fór til Noregs trúði ég engu slæmu um þá en eftir að hafa búið þarna kom ýmislegt í ljós.  En ég tek það fram að við almenning í Noregi hef ég bara átt mjög góð samskipti en almenningur er ekki það sama og "kerfið".

Endilega Einar þegar þú kemur næst til landsins hafðu þá samband við mig ég er með óvæntar fréttir fyrir þig.

Jóhann Elíasson, 6.1.2010 kl. 21:55

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þetta er rétt hjá þér Jóhann - þeir voru alltaf að tala um Gammel Norsk en ég hélt nú ekki - og sama á við um Njálu þegar þú minnist á þetta

hef ávalt gaman af að spurja norðmenn hver nyrsti oddi noregs er og koma þeir ávalt með vitlaust svarið - Veist þú það ?

Jón Snæbjörnsson, 7.1.2010 kl. 08:09

9 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

auðvitað veistu

Jón Snæbjörnsson, 7.1.2010 kl. 08:10

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, ég er ekki viss um að ég sé með "rétta" svarið?

Jóhann Elíasson, 7.1.2010 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband