ER EITTHVAÐ AÐ ÞVÍ AÐ FÁ SÉR "LAMBAKJÖT"????????

Það er ekki eingöngu bundið við karlmenn að vilja yngja upp.  Á ekki að vera jafnrétti í þessum málum sem öðrum?????
mbl.is 19 ára ástmaður 58 ára þingkonu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki aldur afstætt hugtak svo framlega sem fólk er ekki undir lögaldri.

Jón (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 21:52

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hefði nú haldið það Jón.

Jóhann Elíasson, 8.1.2010 kl. 21:59

3 Smámynd: Eygló

Væri þetta ekki frekar folaldakjöt, eða?

Eygló, 8.1.2010 kl. 22:39

4 identicon

Ekkert að því að kona fái sér lambakjöt. Gallin er bara sá, að í þessu tilviki er konan gift og hefur úthúðað samkynhneigðum á grundvelli einhvers "kristilegs siðferðis."

"I cannot think of anything more sickening than a child being abused. It is comparable to the act of homosexuality. I think they are all comparable. I feel totally repulsed by both."

http://www.pinknews.co.uk/news/articles/2005-8428.html/

Þegar einhver biflíuveifarinn talar um samkynhneigð sem einhverja "ógn við fjölskylduna" eða annað slíkt, og verður síðan uppvís að einhverju svona, á viðkomandi allt háð og spott skilið.

Sigurjón (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 02:33

5 Smámynd: Eygló

Sigurjón, er þetta ekki hámark hræsninnar? og tvöfeldninnar...

Eygló, 9.1.2010 kl. 03:06

6 Smámynd: Stefán Karl Lúðvíksson

ÉG VONA BARA AÐ ÞAU HAFI NÁÐ AÐ NJÓTA ÞESS ÁÐUR EN BRESKA ÍHALDSPRESSAN FÓR AÐ SKIPTA SÉR AF ÞESSU OG GERA ÚR ÞESSU FJAÐRAFOK.

Stefán Karl Lúðvíksson, 9.1.2010 kl. 05:40

7 identicon

Hámarks hræsninnar... í mér eða henni þá? :-)

Sigurjón (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 12:53

8 identicon

Yfirskriftin er kjarni málsins.  19 ára ástmaður 58 ára gamallar konu.  Þetta eru fordómar í reynd gagnvart konum og aldri þeirra.  Þessi yfirskrift gefur í skyn að  "eldri konur " sem nú á dögum líta stundum út eins og unglingar eigi ekki neitt kynlíf og að nú hafi 58 ára gömul kona klófest saklausan 19 ára ungling.

Nú á dögum og líka áður fyrr hafa eldri karlar gifst og verið með mun yngri konum og þykir eiginlega ekki fréttnæmt. Heldur bara sjálf sagt.  67 ára poppstjarna karlkyns með 23 ára konu.

Það sem ekki er talað um er að yngri menn hundelta oft fallegar konur þó þær séu 58 ára eða jafnvel eldri.  Ég sé ekki að þetta sé neitt til að hneykslast á .

Bryndís (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband