STÓRKOSTLEGUR ÁRANGUR "STRÁKANNA OKKAR"!!!!!!

Þó þeir hafi ekki komið heim með gullpening.   Ég held að það hafi enginn, í alvörunni, reiknað með að þeir ynnu Frakka en það mátti reyna.  Þrátt fyrir það eru strákarnir búnir að vera frábærir á þessu móti - fyrir utan smá hikst í tveimur fyrstu leikjunum.  Það er ekki hægt að ætlast til þess að nokkurt lið taki þessa "mulningsvél" Frakka enda reikna ég með því að þeir valti yfir hundleiðinlega Króatana og hirði þar með Evrópumeistaratitilinn, eins og að drekka vatn.  "Strákarnir okkar" eru heldur betur búnir að vera stolt okkar og ekki lítur framtíðin illa út í handboltanum.
mbl.is Vonandi leika Íslendingar sama leik og í Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jóhannes.

Sammála .

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 31.1.2010 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband