ALLT FULLT AF ÞORSKI Á MIÐUNUM - FULLT AF ÞORSKUM Á HFRÓ = LITLAR AFLAHEIMILDIR.......

Hvað á allur þessi þorskur, sem HAFRÓ-menn finna ekki í árlegu "HAUGARALLI" sínu, að éta????  Rannsóknir sýna það, svo ekki verður um villst, að meðallengd og meðalþyngd þorsks, miðað við aldur, er alltaf að minnka og er aðalástæðan FÆÐUSKORTUR.  Til þess að sporna við þessu er helst að LEYFA AUKNAR veiðar í stað þess að gera eins og HAFRÓ hefur lagt til undanfarin ár að "GEYMA" fiskinn í sjónum "svo það verði hægt að veiða meira seinna".  Allir sem eitthvað þekkja til vita að svona ganga hlutirnir EKKIfyrir sig.  Verði haldið áfram á þessari braut (HAFRÓ-brautinni) drepst fiskurinn, sem er í sjónum, HUNGURDAUÐA.  Það er hægt, með góðum vilja, að líta á hafið sem eitt risastórt fiskabúr svo fiskurinn lifi þá verður hann að fá eitthvað að éta og þegar verður of mikið í "búrinu" verður að "grisja" svo fiskarnir fái það pláss sem þeir þurfa.  Þetta virðast "flestir" vita en hér á landi eru örfáir einstaklingar, sem ekki virðast hafa þessa vitneskju og því miður fyrir þjóðina og þorskstofninn, eru það þeir sem bera fram ráðgjöf um árlegan þorskafla.
mbl.is Alls staðar mokafli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mig minnir að það var talað um það að stunduð hefði verið gríðaleg ofveiði í baretshafi í mörg ár en núna er stofninn stærri en nokkru sinni

kv

Magnús

maggi (IP-tala skráð) 29.3.2010 kl. 09:01

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Maggi, veröldin er skrítin!

Jóhann Elíasson, 29.3.2010 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband