GÁFULEGT HJÁ MANNESKJU SEM VARLA HEFUR ATKVÆÐISMAGN TIL AÐ KOMAST INN........

Annars var gott fyrir Reykvíkinga að fá þessa frambjóðendur í "Kastljósið" í gærkvöldi, þar kom það alveg greinilega í ljós að einungis TVÆR manneskjur eiga eitthvað erindi í borgarstjórn, hitt var bara "ÚRKAST".  Einu manneskjurnar sem komu fram af einhverju viti og yfirvegun voru þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Helga Þórðardóttir.  Reykvíkingar ættu að vera RUV þakklátir fyrir að hafa þennan þátt því nú ættu kosningarnar að verða mun einfaldari.
mbl.is VG útilokar samstarf við Sjálfstæðisflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

Það er einkennileg staða sem komin er upp; ef Hrunið ætlar að refsa í borgarstjórnarkosningum einni glæsilegustu og frambærilegustu konu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nokkurn tíma einast - fyrir það sem flokkurinn klúðraði í landsmálapólitíkinni.

Það verður örugglega sýnt inn í "the green room" í söngvakeppninni í kvöld - og svo byrjar greenið fyrir alvöru.

Atli Hermannsson., 29.5.2010 kl. 10:37

2 Smámynd: Einhver Ágúst

Já en sáuð þið Hönnu aldrei í bakgrunninum að gera Óla að borgarstjóra, að víla og díla og standa í þessum hringlandahætti?

Er það semsagt nóg fyrir ykkur að standi sig vel í vinnunni eftir hádegi, þá verður maður "ein glæsilegasta og frambærilegasta kona sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nokkru sinni eignast"?

Merkilegt.

Bestu kveðjur Ágúst Már Garðarsson 13 sæti Besta flokksins

Einhver Ágúst, 29.5.2010 kl. 10:49

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Einhver Ágúst segir að ekki sé nóg að standa sig vel í vinnunni eftir hádegi!

Ef við gefum okkur að aðeins sé hægt að stada sig vel hálfa vinnulotuna, er betra standa sig vel seinni part vinnulotu en fyrri partinn. Það sýnir að fólk hafi lært eitthvað.

Vissulega er best að standa sig vel í vinnunni allan daginn, en betra er að standa sig vel hálfan en engan.

Gunnar Heiðarsson, 29.5.2010 kl. 10:58

4 Smámynd: Einhver Ágúst

Jú sjaldan er góð vísa of oft hálfkveðin....

Einhver Ágúst, 29.5.2010 kl. 18:40

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það fólk sem heldur að það sé eitthvað erfitt eða flókið að stýra pínulítilli borg eins og Reykjavík veit ekkert um pólitík. Það þarf mann sem vinnur með fólkinu að málum borgarinnar og ekki hugmyndasnauða atvinnumenn sem eiga raunverulega ekkert erindi lengur í stjórnmál. Allt sem tengist Sjálfstæðisflokknum þarf að taka úr embætti allsstaðar. Seka og saklausa...Besti Flokkurinn er bestur og þannig er það bara...

Óskar Arnórsson, 29.5.2010 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband