HVAÐ ER HÆGT AÐ GANGA LANGT Í VITLEYSUNNI????????????

Annað hvort er seðlabankastjóri að opinbera vankunnáttu sína í peningamálum (öðru nafni hagfræði) eða hann er að ganga erinda fjármagnseigenda með þessum orðum sínum.  Það hefur verið rætt um að hugsanlega yrði þetta niðurstaða hæstaréttar, alveg frá því síðasta haust, þannig að fjármálafyrirtækin hafa haft nægan tíma til þess að undirbúa sig fyrir þennan úrskurð.  Ætli málið sé ekki frekar það að "einhver" hefur ekki staðið sig í að koma í veg fyrir að svona yrði úrskurðað.  Að halda því fram að þessi úrskurðir hafi haft einhver áhrif á "vaxtalækkunina" er eins og hvert annað bull og svo bítur hann hausinn af skömminni með því að segja að alls ekki verði hægt að aflétta gjaldeyrishöftunum.  Hann hefur talað um að það sé ekki hægt að aflétta gjaldeyrishöftunum alveg frá því að hann tók við seðlabankastjórastöðunni og á hverjum einasta "vaxtaákvörðunardegi" hefur hann komið með einhverja "afsökun" fyrir því að vextir lækka ekki meira en raun ber vitni, en eitt er sameiginlegt með öllum þessum afsökunum;ÞÆR ENDURSPEGLA ÞAÐ AÐ HANN ER FASTUR Í HAGFRÆÐIKENNINGUM "KLASSÍSKU" HAGFRÆÐINGANNA, SEM FLESTUM (KENNINGUM) VAR KOLLVARPAÐ 1936 OG SÍÐAN HAFA KOMIÐ MARGAR KENNINGAR FRAM UM SAMBAND STÝRIVAXTA OG VERÐBÓLGU OG NÝJUSTU KENNINGARNAR ERU ÞÆR AÐ Í SVONA LITLUM HAGKERFUM SÉ EKKERT SAMBAND ÞARNA Á MILLI.
mbl.is Hefðu lækkað vexti meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

kanski er sannleikurinn óbærilegur ? Viljum við ekki hafa lífið eftir því sem okkur best hentar hverju sinni ?

Finnur Bárðarson, 23.6.2010 kl. 21:43

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég fæ ekki séð að seðlabankastjórinn hafi neitt um þetta mál að segja. Úrskurður Hæstaréttar er ekki túlkunaratriði að geðþótta eins eða neins. Hæstaréttarúrskurður er altækur og í þessu tilfelli snýr hann einvörðungu að því að staðfesta að þau lög sem voru í gildi frá 2001 hefðu verið brotin næstum frá gildistöku.

Nær væri stjórnvöldum að undirbúa í skyndi viðbrögð þegar skaðabótamál verða höfðuð gegn sýslumannsembættum sem ítrekað hafa fullnustað aðfarardóma sem byggðir voru á lögbrotum gegn fjölda gerðarþola.

Enga trú hef ég á því að Hæstiréttur muni láta Gylfa Magnússon skipa sér til að útfæra nýjan vaxtareikning í stað þess sem kveðið er á um í þeim lánasamningum sem dæmdir voru ólögmætir.

Breyttar forsendur sem rætt hefur verið um að bankarnir standi nú frammi fyrir eru höfuðverkur bankanna en ekki lántakenda.

Mikill forsendubrestur varð á samningum með verðtryggingu en sá forsendubrestur á víst ekki að verða áhyggjuefni lánastofnana heldur lántakenda!

Árni Gunnarsson, 23.6.2010 kl. 22:27

3 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Ísland á sér ekki viðreisnar von og best að ganga sem fyrst í ESB eða ellegar að afsala sjálfstæðinu til Danmerkur.  Þetta gjörspillta þjófa þjóðfélag sem er með dæmda þjófa á þingi, er þvílíkt bananalýðveldi að verstu ríkin í svörtustu Afríku blikna í samanburði.  Íslendingar eru aumingjar upp til hópa og þurfa á smá aga að halda.  Fyrsta skrefið í því ferli er að afsala sjálfstæðinu enda kunna íslendingar ekki með það að fara.  Flestir komnir af snæris- og sauðaþjófum sem leynir sér ekki í þeirra framferði.  Þetta er keppni um að stela sem mestu og ljúga eins miklu og hægt er.  Þetta er rotið samfélag.

Guðmundur Pétursson, 24.6.2010 kl. 06:03

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Árni, auðvitað er það alveg rétt hjá þér að Már hefur EKKERT um þetta að segja en við höfum orðið vitni að því að ólíklegustu menn eru að tjá sig um hin ólíklegustu mál og þannig eru þeir að REYNA að hafa áhrif á útkomu þeirra eins og Viðskiptaráðherra.

Guðmundur, hvaða rök getur þú fært fyrir því að stjórnunin verði betri undir ESB á það skal minnt að ESB hefur "leppstjórn" heimamanna í hverju landi fyrir sig.

Jóhann Elíasson, 24.6.2010 kl. 07:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband