LÖGBROT ERU LÖGBROT!!!!!!!!!!!

Og fyrir þau ber að refsa.  Eftir þessu að dæma þá á einhver aðili að ákveða að sum brot séu ekki þess eðlis að það eigi að vera nein refsing við þeim.  En hver getur tekið svona lagað að sér og verður niðurstaða þessa aðila alltaf "réttlát"??????
mbl.is 705 taka stöðu með níumenningunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Burtséð frá þessu einstaka máli finnst mér þetta lýsa pínulítið ógnvekjandi hugsunarhætti sem ég hef orðið var við í umræðunni hér á landi. Svona komment eins og "á einhver aðili að fara að ákveða hvað má og má ekki og hvort refsa eigi fólki eða ekki!"... eh... já.

Það eru einmitt bara "einhverjir aðilar" sem ákveða hvað er lögbrot og hvað er ekki lögbrot, fyrir hvað beri refsa og með hvaða hætti. Þannig hefur það alltaf verið en það er eins og mannfólkið hafi frá upphafi ímyndað sér að þessi mál séu einhvernveginn sjálfkrafa ákveðin af æðri máttarvöldum eða bara náttúrulögmálum. Það eru bara menn eins og ég og þú sem sitja á stólum í herbergjum og segja: "Eh, Jói, banna þetta? OK, hvað segiru... fimm ár í mesta lagi?"

Svo eru aðrir menn í öðrum herbergjum sem segja: "Siggi, passar þetta við bókstaf og anda laganna? Hvernig refsingu ættum við að slumpa á?"

Við fáum lögin og dómana ekki á einhverjum steintöflum af himnum ofan. Þetta er ekkert sérstaklega traustvekjandi þegar maður fer að hugsa um það en svona er bara raunveruleikinn - það er ekki til neitt sem heitir yfirvöld eða lögregla eða lög. Bara menn í búningum og með skrifborð sem ákveða hluti fyrir aðra svo lengi sem fólk sættir sig almennt við það. Og fólk sættir sig einmitt við það út af því að það heldur að embættið sé til í eignlegum skilningi en ekki bara huglægum eins og raunin er.

f (IP-tala skráð) 24.6.2010 kl. 12:11

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það gat svosem verið að einhver "spekingurinn" þyrfti að koma fram og reyna að snúa út úr því sem er verið að fjalla um.  Að sjálfsögðu er "einhver" sem ákveður hvað séu lög og hvað ekki en það eru EKKI einhverjir minnihlutahópar úti í bæ sem taka þá ákvörðun í dag eins og virðist vera að ýmsir vilji hafa hlutina í dag.

Jóhann Elíasson, 24.6.2010 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband