ALMANNAHAGSMUNIR!!!!????

Það er ekki laust við að manni stökkvi bros, þegar maður hlustar á BULLIÐ í Arnóri þó manni sé síður en svo hlátur í huga.  Í máli sínu tekur hann ekkert tillit til þess að það eru MINNST tvær hliðar á ÖLLUM málum og að tala um að hér á landi sé búið að ná einhverjum fjármálalegum STÖÐUGLEIKA og það sé hætta á að fjármálakerfið hér fari yfir um vegna Hæstaréttardómsins, þetta eru einhver mestu öfugmæli sem hægt er að láta út úr sér og sýnir ekkert annað en það að maðurinn er að tala máli fjármálastofnananna.  Hafa menn EKKERT LÆRT af hruninu???  Fjármálastofnanirnar koma fram og segja að þetta sé ekki svo mikill skellur fyrir þær en stjórnvöld og eftirlitsstofnanir segja að þetta setji fjármálakerfið á hliðina?????????????  En svo eiga allir "álitsgjafarnir" eftir að koma fram og tjá sig um þetta og hverjar afleiðingarnar verði ef hin og þessi leið verður farin...............
mbl.is Almannahagsmunir í húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er afar viðkvæmt mál að skima eftir útgönguleiðum frá dómun Hæstaréttar. Ég sé fyrir mér málskot til alþjóðlegra dómstóla ef þessir tilburðir stjórnsýslustofnana til að finna sérleiðir verða teknir alvarlaga og framkvæmdir.

Árni Gunnarsson, 30.6.2010 kl. 16:10

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Burt með þessa ríkisstjórn og alla hennar pótintáta.  Ég vil utanþingsstjórn og það strax áður er þessir aular fara með allt traust á stjórnmálum ofan í ræsið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.7.2010 kl. 11:42

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Orðið "almannahagsmunir" verður brátt eins og íslenska útgáfan af því sem í Bandaríkjunum er kallað "þjóðaröryggi" = óskilgreind tilvísun í einhverja aðsteðjandi ógn, sem hægt er að nota í áróðursskyni til að réttlæta hægfara sviptingu borgaralegra réttinda, fullveldisafsal, arðrán, launsæri, valdníðslu, og jafnvel stríðsglæpi.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.7.2010 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband