ÁHUGAVERÐ KENNING............

....En það verður "handleggur" að sanna hana, svona í fljótu bragði sé ég ekki hvernig það verður gert....
mbl.is Heimur inni í svartholum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Það verður aldrei hægt að sanna þessa kenningu, aðeins leiða líkum að réttmæti hennar eða óréttmæti. Þess ber að geta, að svona kenningar varðandi svarthol eru alls ekki nýjar. Fyrir nokkrum áratugum síðan var uppi kenning um að það skipti máli hvort svartholið snerist um sjálft sig eða væri statískt. Í fyrra tilfellinu væri hægt að fara í gegnum svartholið inn í annan alheim, en í hinu síðara ekki. Eitt er víst, að ekkert geimfar með mælitækjum myndi lifa það af að ferðast inn í svarthol, né geta sent upplýsingar aftur til jarðar.

Þótt þessi kenning um að svarthol séu hlið til annarra alheima verði einhvern tíma talin líkleg, þá mun það þó sennilega ekki útskýra uppruna alheimsins. Það eru í gangi þrjár aðalkenningar um eðli og tilurð alheimsins (sjá Lifandi vísindi nr. 1/2010), en engin af þeim inniheldur svarthol sem hlið til annarra alheima. Ekki ennþá, allavega. Hins vegar eru sumir sem álíta, að ákveðið svæði í geimnum, sem er algjörlega tómt, séu leifar af framandi alheimi. En allt þetta eru einungis kenningar, sem mælingar næstu áratugi og aldir munu annað hvort styðja eða ekki.  

Vendetta, 3.8.2010 kl. 10:01

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir þennan mikla og góða fróðleik, Vendetta.  Maður kemur aldrei að tómum kofanum hjá þér.

Jóhann Elíasson, 3.8.2010 kl. 10:08

3 identicon

Alheimurinn er áhugaverður og gaman að sjá kenningar sem menn nota til að útskýra það sem þeir geta ekki þreifað á. Ein forn bók, kölluð Enoksbók, greinir frá því að Guð hafi tekið samansafn fallinna engla og myndað fangelsi fyrir þá svo þeir geri ekki meiri skaða en orðið var. Þetta fangelsi var gert úr þyngdarafli stjarna sem englarnir gátu ekki rofið. Heitir það ekki svarthol?

Löggan fleygði mönnum í svartholið í gamla daga en í dag sjáum við að Svartholið er til en áttum okkur ekki á tilgangi þess.

Þetta er allavega ein kenningin í viðbót.

Í Guðs friði.

Snorri í Betel

snorri í betel (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband