ÞÓ FYRR HEFÐI VERIÐ!!!!!!!!!

Það er öllum ljóst að núverandi ríkisstjórn ræður engan vegin við það verkefni að koma landinu í var undan þessu bankahruni og efnahagskreppunni.  En það hefur enginn af þingmönnunum á Alþingi haft til þess kjark eða þor að fara fram á kosningar.  Þór Saari hefur eitthvað talað utan af því en þar með er það upptalið.  Það hefur ekki komið tillaga um kosningar vegna þess að þingmenn eru skíthræddir um að það komi fram framboð eins og Bezti flokkurinn, sem hirði til sín megnið af fylginu og að einhverjir "spéfuglar" komist til valda, t.d verði Sveppi Forsætisráðherra, Pétur Jóhann Fjármálaráðherra og Helga Braga Utanríkisráðherra og núverandi þingmönnum verði kastað út í ystu myrkur.
mbl.is Frjálslyndir krefjast þingrofs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mér heyrðist einhvern veginn á Atla Gíslasyni í formála fyrir atkvæðagreiðslunni að hann ætlaðist til þess að samstarfsmenn hans í ríkisstjórnarmeirihlutanum skildu það að úrslitin gætu ráðið úrslitum um framtíð samstarfsins.

Nú á það eftir að koma í ljós.

Svo var nú ekki hægt að misskilja Lilju Mósesdóttur í viðtalinu í gærkvöld á Stöð 1.

Spurningin er bara hvenær þessi sápukúla fyllt með ólofti andstyggðarinnar springur. 

Árni Gunnarsson, 29.9.2010 kl. 18:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algjörlega sammála nema mér finnst það alveg yfirnáttúrulegt að ríkisstjórnin skuli ekki vera "sprungin" fyrir löngu síðan.  Sýnir það ekki að það eru bara ráðherrastólarnir og völdin sem halda þessu getulausa óbermi saman???? 

Jóhann Elíasson, 29.9.2010 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband