ER EKKI JÓN GNARR SEM BORGARSTJÓRI "BARA EITTHVAÐ RUGL"????

Væri ekki ráð hjá honum að fara að "hnoða" fjárhagsáætluninni fyrir borgina og fyrirtæki hennar saman og fara að gera eitthvað af því sem hann var kosinn til í stað þess að vera með einhverjar svona misgáfulegar athugasemdir á "fésinu"??????


mbl.is Er samgöngumiðstöðin „rugl“?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Axelsson

mér finnst reyndar mikils vert að borgarstjórinn skuli hafa fyrir því að spyrja sauðsvartan almúgann hvað honum finnst.

Magnús Axelsson, 30.9.2010 kl. 13:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er hann að því með þessu?

Jóhann Elíasson, 30.9.2010 kl. 13:19

3 identicon

Borgarstjórinn gæti eins vel spurt hvort innanlandsflugið sé "rugl".

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 13:28

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, maðurinn er bara trúður, og hefur verið það lengi, það tekur langan tíma fyrir hann að laga sig að nýju jobbi.

kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 30.9.2010 kl. 14:50

5 Smámynd: Kommentarinn

Jú borgarstjórinn er að spyrja almenning: "Er samgöngumiðstöðin ekki bara rugl?" Það finnst mér vera mjög tímabær spurning sem ég held að menn hafi ekki spurt sig aðþegar þetta apparat var sett inn í skipulag.

Kommentarinn, 30.9.2010 kl. 14:51

6 Smámynd: Einhver Ágúst

Já hann er að velta fyrir sér milljarða framkvæmd sem er eftir því sem við best sjáum óþarfi og í besta falli illa ígrunduð og illa staðsett.

Það hefur nú bein áhrif á fjárlög.

Og svona til að upplýsa þig þá er vinna við fjárlagagerð í fullum gangi og gengur vel, það er mjög margt sem þarf að hafa í huga og þessi fjárlög óvenju erfið þarsem við með heiðarleika höfum rýrt tekjur borgarinnar um td 800 milljóna hagnað frá OR á næsta ári og svo lækkandi fasteignagjöld.

Gatið er því óvenju stórt og mikið sem þarf að hafa í huga.

En vinnan er í fullum gangi og unnin alla daga, er vissulega seinna ferðinni þetta árið eisog venjulega á kosningaári og ekki unnið nákvæmlega eftir skipunum Hönnu Birnu, enda er hún ekki borgarstjóri lengur.

 En þessu miðar vel get ég sagt þér og verður vandað til  verksins.

Allt það starf miðast af að á jafnvægi milli niðurskurðar, tekjuaukningar áður en til hugsanlegra útsvarhækkanna komi.

Það að borgarstjóri vilji vera í sambandi við kjósendur gengum facebook getur nú ekki verið slæmt eða gagnrýnisvert er það?

Hafðu það sem allra best Jóhann minn og njóttu Regnboganna...

Kv Gústi

Einhver Ágúst, 30.9.2010 kl. 15:17

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Gústi og ég vona að þú hafir það gott líka.

Jóhann Elíasson, 30.9.2010 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband