EKKI NÓG AÐ MÓTTAKA SKILABOÐIN - ÞAÐ ÞARF AÐ BREGÐAST VIÐ ÞEIM....

Viðbrögðin hjá þeim skötuhjúum Heilagri Jóhönnu og Gunnarsstaða-Móra við mótmælunum í gærkvöldi, eru dæmigerð fyrir það úrræðaleysi, sem hefur einkennt störf þeirra hingað til.  Ég er sammála Heilagri Jóhönnu með það að þjóðstjórn leysi engan vanda.  Þingið hefur sýnt það svo um munar að það er gjörsamlega ófært um að gera nokkurn skapaðan hlut af viti, til þess virðast hin ýmsu hagsmunatengsl vera allt of sterk.  Eina vitið er að skipuð verði UTANÞINGSSTJÓRN, sem skipuð væri fagfólki, algjörlega ótengt þinginu.  Og að þessi utanþingsstjórn myndi bara koma reglulega niður í þing og væri þar með fyrirspurnartíma.
mbl.is Mikilvægt að ná samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hann skráir sig hjá mömmu.

Veist þú hvar hann á heima?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 6.10.2010 kl. 06:54

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Jóhanna gaf veika von um að hún myndi stíga til hliðar - Guð gefi að það viti á gott -

Dagurinn í dag er kjörinn til þess - u.þ.b. 7 stiga hiti í Reykjavík - milt veður - og kyrrt -

Margar tunnur bíða þess að verða barðar í ólögulegar hrúgur -TugÞúsundir heimila bíða eftir því að andlegt samband komist á við ríkisstjórnina -

En það dugar skammt að öflugur sendir landsmanna sendi út neyðarköll ef slökkt er á móttakara stjórnarinnar.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 6.10.2010 kl. 07:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband