HVAÐ ER ÓLJÓST?????????????????

Það eina sem er óljóst er að menn eru eitthvað "tregir" til að viðurkenna að þetta var "KLÚÐUR" frá upphafi til enda og getur ekki gengið.  Því lengur sem menn berja hausnum í steininn með þetta því dýrara verður þetta vesen fyrir þjóðina og óvissan um alvöru samgöngur fyrir Vestmannaeyinga verður meiri og afleiðinga þessa máls alvarlegri.
mbl.is Ekki tókst að ljúka sanddælingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ætli svona andsk. brjálsemi sé ekki einsdæmi í okkar tæknivædda heimi?

Þessi sanddælufyrirtæki hljóta að vera í einhverju sérstöku uppáhaldi hjá stjórnvöldum. Hugsanlega er þetta bara ný aðferð sem tekin hefur verið upp í stað afskrifta á skuldum!

Árni Gunnarsson, 31.10.2010 kl. 16:53

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta "KLÚÐUR" og hvernig er brugðist við því hlýtur að vekja VERULEGA athygli út fyrir landsteinana.

Jóhann Elíasson, 31.10.2010 kl. 16:57

3 Smámynd: GAZZI11

Þetta er bara snilldin ein..

Alþingi samþykkti að láta skoða það að reisa höfn í Landeyjafjöru. Sú samþykkt var algjörlega byggð á sandi.

Þeim hjá Siglngamálum  fannst þetta flott hugmynd og tóku ákvörðum um að rannsaka þetta nánar. Sú ákvörðun vara byggð á sandi.

Þeir söfnuðu upplýsingu um vinda og veðurfar og öldumælingar. Þær mælingar voru allar byggðar á sandi og rangar eftir því. Ölduduflið á kafi og sýndi minni ölduhæð og ríkjandi vindáttir orðnar kolvitlausar og náttúran sögð þá í miklu jafnvægi.

Ekkert var hlustað á menn sem þekktu staðhætti og ennfrekar héldu stjórnmálamenn og fræðingar að vinna við upplýsingar sem voru reistar á sandi.

Hafnarlíkanið var grín frá upphafi og gat ekki sýnt eða hermt eftir suðurströndinni og allar upplýsingar því byggðar á sandi.

Þetta leiddi til þeirrar niðurstöðu að byggja höfn í/á sandi.

Staðsetningin á Höfninni er reyndar slík að ákvörðunin um staðsetningu er hverju mannsbarni ljóst og reist á sandi. Eftir nokkra tugi ára verður sennilega Höfnin komin langt upp í sand og þá munu menn gapa yfir þessu mannvirki uppi á þurru landi. 

Af þessu leiðir að allar yfirlýsingar forsvarsmanna eru byggðar á sandi og algjört rugl að taka nokkurt mið eða trúanlega það sem þeir segja.

GAZZI11, 31.10.2010 kl. 17:16

4 Smámynd: Jónas Jónasson

Berjast við vindmyllur og dæla út 1. stk. milljón á dag, á meðan er fólk sem bíður í röðum eftir mat???

Jónas Jónasson, 31.10.2010 kl. 17:20

5 identicon

Ef við erum heppin, þá sekkur þetta á kaf í sandinn og við þurfum ekki að horfa upp á þessa mokdýru tilraun.

Jóhannes (IP-tala skráð) 31.10.2010 kl. 17:23

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er sorglegt mál

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.10.2010 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband