EVRAN Á SKIPULÖGÐUM FLÓTTA - NÆSTI FASI ER UPPGJÖF!!!!!!!!!!!!!!!

Evran hefur verið það sem -sinnar hafa hampað mest þegar þeir hafa talað fyrir "kostum" þess að Ísland gangi í ESB, "en svo bregðast krosstré sem önnur tré".  Undanfarnar þrjár vikur hefur gengi evrunnar verið að SÍGAgagnvart USD, ekki er dollarinn sterkasti gjaldmiðillinn þessa dagana.  Dollarinn er arfaslakur nú vegna stríðsrekstrar Bandaríkjanna í Afganistan og Íraks og hörmulegu gengi þar, hugsanlegs stríðs í Íran og líkunum á því að Bandaríkjamenn dragist inn í átök á Kóreuskaga og svo er alveg gríðarlegur fjárlagahalli í Bandaríkjum og efnahagsvandi sem stjórnvöld ráða engan vegin við.  En hvernig skyldi eiginlega standa á því að evran stendur svona illa????  Jú það er nokkuð augljóst,  Evran er SAMEIGINLEGUR GJALDMIÐILL margra ólíkra ríkja og í efnahagslegu tilliti eiga FLEST þessara ríkja EKKERT sameiginlegt.  Eins og með allt sem er miðstýrt, þá varð evran einhvers staðar að hafa viðmið sitt og þetta viðmið er Þýskaland og Frakkland er þarna inni líka.  Þetta þýðir að önnur ríki á evrusvæðinu, með annað efnahagskerfi, geta ekki brugðist við neinni ógn því þau hafa ENGIN áhrif á það hvernig á að bregðast við.  Því það sem er slæmt fyrir efnahaginn í Portúgal er kannski alveg ágætt í þýskalandi.  Og svo þegar mistökin verða ljós og efnahagur margra evruríkja HRYNUR, þá er gripið til "ráðstafana" til að "bjarga" efnahag þessara ríkja.  En markaðurinn telur að VANDINN sé og verði bara það mikill að ekki verði við ráðið og þessar "björgunaraðgerðir", séu unnar fyrir gíg. Margir harðir ESB sinnar myndu jú segja "En þetta ástand er ekki evrunni að kenna".  En er evran ekki að stærstum hluta sökudólgurinn og það hvernig var staðið að innleiðingu hennar?????  Hvernig væri nú að JÁ- sinnar færu nú að opna augun og horfa á hlutina eins og þeir eru?????
mbl.is Evran víti til varnaðar í Afríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei það gera þeir ekki.  Það er bara fundinn ný afsökun. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.12.2010 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband