HVERNIG ER EIGINLEGA ELDSNEYTISVERÐ ÁKVEÐIÐ???????????

Vakna menn bara einn morguninn og segja, milli þess að menn fá sér kaffi og lýsi, það er best að hækka bensínið um 3 krónur í dag.  En svo líður að kvöldi og þá áttar sami maðurinn sig á að dagurinn hefur bara verið alveg ágætur og ákveður að hætta við hækkunina.  Er það svona sem ferillinn er????  Ef svo er þá eru þetta ekki neitt rosalega fagleg vinnubrögð, er ekkert eftirlit með þessu???????
mbl.is Hækkun dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Friðriksson

Kannski hefur verið ílla mætt á samráðsfundinn í dag.

Friðrik Friðriksson, 29.12.2010 kl. 21:18

2 identicon

Góður punktur. Verð er greinilega ákveðið yfir kaffibollanum.  En við getum líka hreinlega minnkað akstur það mikið að þeir tapi og neyðist til að lækka verð. Meðan enginn gerir neitt þá hækka þeir bara verð endalaust og nota hvað fáránlegu skýringu sem er.

Gunnar Hallberg (IP-tala skráð) 29.12.2010 kl. 23:54

3 identicon

Einhvernvegin finnst manni að vara eins og bensín sem getur varla annað en talist nauðsynjavara, eigi að vera 'veitt þjónusta' (hvort að sú þjónusta eigi að vera veitt af ríkinu?) frekar en gróðra bissness og brask.

Sleppa þessum rándýru yfirbyggingum og verslunum og veita landsmönnum bara þá þjónustu að geta keypt eldsneyti á bifreiðar sínar án svona álagningar og samráðssvika og pretta.

Maður er alveg að fá nóg $"%&$%$&/&#""!!!

Það er ekki búandi í þessu landi lengur.

Einar (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband