GRÍPANDI VIÐLAG..................

Annað var það nú ekki sem kom þessu lagi áfram, jú og að sjálfsögðu samúðin en á hún að ráða því hvert verður framlag landsins í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?????????????  Mér er það stórlega til efs að þetta lag hefði orðið framlag okkar ef aðstæður hefðu verið aðrar???? 
mbl.is „Aftur heim“ sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jóhann, ég leyfi mér að vera algerlega ósammála þér, þetta fannst mér og mínum besta lagið í kvöld, ásamt laginu hans Magna, en það fór þó  svo að "Aftur Heim" sigraði, ég þekkti Sigurjón lítillega  í gegnum föður hans og lýsir þetta lag honum ákaflega vel, þetta var ákaflega kurteis og góður drengur með mikla lífsgleði og lagið nú, sem og lagið hans  í fyrra eru gott dæmi um skáldagleði hans.

Gudmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 13.2.2011 kl. 00:43

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki er ég að efast um ágæti Sigurjóns, enda þekkti ég manninn ekkert.  Ekki ætlast ég til að þú sért mér sammála en mér sýnist á athugasemd þinni að þú sért nú ekki alveg hlutlaus.

Jóhann Elíasson, 13.2.2011 kl. 00:54

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég var alveg gáttuð á því að Magni skyldi komast svona hátt, að mínu mati var hann bæði lélegasti söngvarinn og þar að auki með leiðinlegasta lagið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2011 kl. 01:30

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það virðist bara vera að þessi úrslit segja okkur að símakosning virðist EKKI vera rétta leiðin til þess að velja framlag okkar í þessa keppni.......  Hver rétta leiðin er veit ég ekki en það virðist nokkuð augljóst að rétta leiðin var ekki notuð í þetta skiptið.........

Jóhann Elíasson, 13.2.2011 kl. 01:46

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þetta var besta lagið, hvað sem líður samúðarbylgjum. Nótt fannst mér vera mjög flatt og hugmyndasnautt lag, kannski ekki lélegt en eitthvað sem maður hefur heyrt hundrað sinnum áður. Önnur lög hrifu mig ekki.

Theódór Norðkvist, 13.2.2011 kl. 06:59

6 identicon

Þegar ég frétti af andláti hans og að hann ætti lag í eurovision, þá vissi ég að lagið hans myndi vinna á samúðinni einni saman, og það reyndist rétt hjá mér.

Skiptir engu, lagið er ekki verra né skárra en önnur eurovision lög; Það má jafnvel deila um hvort þetta sé tónlist sem er á ferð í þessari fáránlegu "keppni".

DoctorE (IP-tala skráð) 13.2.2011 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband