ER ÞESSI FJÖLGUN FARÞEGA EKKI HÁÐ EINHVERJUM SKILYRÐUM?????

Þó svo að ferðalagið sé stutt frá Landeyjahöfn og til Eyja eru vissar öryggisreglur sem þarf að uppfylla og númer eitt í fólksflutningum er að tryggja öryggi farþeganna eins og frekast er kostur.  Hefur björgunarbátum verið fjölgað, hefur björgunarvestum verið fjölgað, hafa verið gerðar ráðstafanir til þess færa þyngdarpunkt skipsins neðar í samræmi við aukinn farþegafjölda (það er gert með því að meiri olía verði í tönkum skipsins, ballest verði aukin)????


mbl.is Fleiri fá að ferðast með Herjólfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég las einhverstaðar að Herfjólfur fái ekki að flytja þann fjölda sem hann væri hannaður fyrir, vegna aldurs. Veit ekki hvort þetta er rétt, en ef svo er hugsanlegt að aðeins sé verið að afnema þá takmörkun þessa daga. 

Ég ætla skipsstjórnarmönnum Herjólfs ekki annað en þeir gæti að öllum þáttum er varðar öryggi skipsins.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.7.2011 kl. 15:10

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við skulum hafa það alveg á tæru (Eins og ég sé að þú gerir í athugasemd þinni Axel), að skipstjórnarmenn Herjólfs hafa EKKERT gert eða aðhafst sem ekki er alveg 100% og vel það og mér dettur ekki í hug að gagnrýna þá og störf þeirra á nokkurn hátt enda hef ég ekki neinar forsendur til þess.  En eins vitum við það báðir að þeir tímar þegar skipstjórinn var æðsta vald skipsins eru liðnir nú er það útgerðin sem hefur valdið og á meðan allt gengur vel segir enginn neitt (eðlilega) en þegar allt fer á versta veg er ábyrgðin skipstjórans og hann er rekinn með skömm (þetta sannaðist með Vikartind, þegar hann strandaði.  Það eru til upptökur af því þegar fulltrúi útgerðarinnar bannaði skipstjóranum að þiggja aðstoð þegar rúm míla var upp í land.)

Jóhann Elíasson, 25.7.2011 kl. 15:37

3 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Skipið hefur alltaf mátt flytja 525 manns á milli eyja og þorlákshafnar.

en vegna þess að það eru færri í áhöfn þá er það fækkað þegar að farið er til landeyjarhafnar, nú er bara verið að fara með fjöldann upp í þetta aftur.

það eru björgunarvesti og bátar fyrir vel rúmlega þennan fjölda  og hefur alltaf haft.

nú reikna ég síðan bara með því að áhöfn hafi vit áþví hvernig skipið er hlaðið.

en það er nú ekki veirð að tala um nema ca 15 - 20 tonna aukinn þunga á skipið (með farangri), sem að er nú andskotann ekkert fyrir þetta skip hefði maður haldið.

en það er búið að auka við 5 í áhöfn fyfir þessa daga.

Árni Sigurður Pétursson, 25.7.2011 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband