JÆJA, ÞÁ FÆR HANN UPPSAGNARBRÉFIÐ EFTIR HELGI................

Ég hélt að menn vissu það að ef þeir ætluðu sér að halda í vinnuna sína þá ætt ekki að gagnrýna yfirboðara sína eða nokkuð sem getur fallið undir þá.....................
mbl.is Segja Landeyjahöfn ekki tilbúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas H Sveinsson

Skipstjórnarmenn hafa rétt fyrir sér. Höfnin er og verður aldrei annað en góðviðrishöfn enda ekki gerð til að bæta samgöngur heldur til að kaupa atkvæði. Skora á alla Sunnlendinga að sýna samhug um að þeir sem stóðu að þessari vitleysu verði sendir heim úr þeim ábyrgðarstöðum sem þeir sitja í í dag. Skiptir engu hvort sú staða er við Austurvöll eða ekki. Þessi höfn var dauðadæmd áður en framkvæmdir við hana byrjuðu.

Tómas H Sveinsson, 28.7.2011 kl. 15:19

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gæti ekki verið meira sammála, en því miður er það þannig að oft á tíðum ef menn segja hug sinn þá er þeim refsað og síst af öllum ætti að refsa skipstjórnarmönnunum á Herjólfi, því þeir hafa staðið sig eins og HETJUR í þessu máli, það er meira en hægt er að segja um suma aðra.

Jóhann Elíasson, 28.7.2011 kl. 17:19

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ekki má maður gefast upp á því að rökræða þessa "Land-Eyjahöfn" En ég er nú eins og þú veist kannski svolítill frjálshyggjumaður með íhaldi í bland, og það sem meira er, ég er mikill áhugamaður um bættar samgöngur til Eyja og um allt land, það eiga allir á Íslandi rétt á góðum samgöngum. En réttsýnið hjá ráðamönnum hér á fróni er ekki alltaf eins og mér finnst það ætti að vera.

Já þetta með tjáfrelsið er ekki lengur fyndið og hefur reyndar aldrei verið, ég hef oft verið vitni á því valdi sem menn hafa og beita miskunnarlaust.

Ég get fullyrt það að skipstjórnarmenn á Herjólfi eru MJÖG GÓÐIR í sínu fagi, ég var sjálfur um borð sem háseti í fyrra haust, er Guðlaugur Ólafsson frændi minn reddaði okkur og farþegum úr sjávarháska sem við lendum í er við sigldum inn í Land-Eyjahöfn.

Það fyrsta sem menn í stjórnsýslunni þurfa aða gera er að viðurkenna að þetta er ekki nógu stór höfn, garðarnir ná ekki nógu langt út, þeir þurfa að ná út að sandrifinu.

Kær þjóðhátíðarkveðja frá Eyjum

Helgi Þór Gunnarsson, 30.7.2011 kl. 17:47

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Síst af öllu vil ég atyrða skipstjórnarmenn á Herjólfi, því ég hef heyrt það MJÖG VÍÐA að þeirra störf séu óaðfinnanleg og þarna séu á ferðinni fagmenn fram í fingurgóma og EKKERT hægt að finna að þeirra störfum.  En því miður tilheyra þeir EKKI "aðlinum" sem er ósnertanlegur þegar finna á sökudólga.

Jóhann Elíasson, 30.7.2011 kl. 20:47

5 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Já Jóhann, það segir þú satt!!!!!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 31.7.2011 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband