VIÐ HVAÐ ERU MENN EIGINLEGA HRÆDDIR????????????

 

Nú rjúka menn upp til handa og fóta yfir þessu.  Það er kannski rétt að benda á það að Grímsstaðir á Fjöllum hafa verið til sölu í fjölda ára og enginn séð nokkra ástæðu til svo mikið sem að skoða jörðina bara talið þetta vera verðlausa auðn lengst uppi á öræfum.  En núna þegar erlendur aðili vill kaupa þá er um að ræða ómetanleg náttúruauðævi.  Eru þetta ekki dæmigerð viðbrögð hjá VG (WC) og okkur Íslendingum almennt?  Hvað heldur fólk eiginlega að maðurinn ætli sér,  kannski halda menn að hann hugsi sér að "skrúfa" fyrir Dettifoss eða eitthvað annað alveg voðalegt??????


mbl.is „Ísland þarf peningana“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Merkilegra er að kaup á landjörðum í ríki eins og íslandi verður aldrei afsal á landsvæði, því innan landhelgi íslands er alltaf hægt að breyta lögum og þvinga eignina aftur í hendur ríkisins, rétt eins og bankar voru þvingaðir í hendur ríkisins.  Það telst því varla neitt sérstaklega góð fjárfesting til langframa, því um leið og íslendingar sjá sjálfir not fyrir þetta svæði, þá verða þær endurheimtaðar með lögum.  Djarfur þessi kínverji segi ég bara.

Jonsi (IP-tala skráð) 31.8.2011 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband