ÞAÐ ERU ENGAR "AÐILDARVIÐRÆÐUR" Í GANGI VIÐ ESB................

Heldur INNLIMUNAR- og AÐLÖGUNARVIÐRÆÐUR.  Svo má halda því til haga að ekki getur verið um samningaviðræður að ræða þegar annar aðilinn stjórnar öllu og beitir líka kúgunum.  ÞAÐ ER EITTHVAÐ ALLT ANNAÐ ORÐ EN SAMNINGAVIÐRÆÐUR NOTAÐ UM SVOLEIÐIS ATHÆFI........... 
mbl.is Þjóðin verði spurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt, þetta er fölsun af verstu gráðu að tala um samning.  Það á að nota rétta orðið þ.e. innlimun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2012 kl. 11:08

2 identicon

Alveg hárrétt Jóhann.

Einnig er það rétt sem Ásthildur segir að hér er um "innlimun" að ræða.

Það er því rétt að fara að kalla þennan skrípaleik umbúðalaust sínu rétta nafni.

Þetta eru ekkert annað en "INNLIMUNAR- VIÐRÆÐUR" þar sem að íslenska þjóðin er dregin á asnaeyrunum og niðurlægð !

Gunnlaugur I (IP-tala skráð) 28.4.2012 kl. 11:17

3 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Hárrétt Jóhann !

Boltinn er hjá ESB, þeir sýna ekki mikilvægustu "kortin" en eru í enfeldni sinni að lauma inn smá "hótunum" um makrílinn og Icesave málið, undirrituðum varð bumbult þegar einn eitilharður (íslenskur) aðildarsinni, notaði "Meðalgöngu" umsókn ESB að Icesave sem sönnun á því hversu gott væri að vera Í ESB. þeir "sæu um sína".

En það er líka margt ósmekklegt sem kemur frá andstæðingum líka, nóg um það.

Vísa annars á eigið blogg við fréttina.

Góðar kveðjur til ykkar landar góðir, frá Norge

KH

Kristján Hilmarsson, 28.4.2012 kl. 11:24

4 identicon

Sæll.

Í stað þess að vera með svona yfirlýsingar ættu þessir þingmenn einfaldlega að leggja fram tillögu á Alþingi þess efnis að viðræðum verði slitið og umsóknin dregin til baka. Það skiptir engu hvað þingmenn segja heldur skiptir öllu hvað þeir gera.

Með því að leggja fram slíka tillögu kæmi berlega í ljós, við atkvæðagreiðslu, hvaða þingmenn hafa hvaða skoðun. Ef Árni "stofnfjárbréf" Þór greiðir atkvæði með að viðræðum verði haldið áfram, ásamt einhverjum öðrum í Vg, ætti slíkt að hafa mikil áhrif á veru þeirra á framboðslita Vg næst. Kjósendur vita þá líka nákvæmlega hvar hver þingmaður stendur í þessu mikilvæga máli óháð flokkum.

Helgi (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 11:02

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er góð ábending hjá þér Helgi, um að gera að svæla menn út í horn og heimta að þeir klæði sig í ermarnar líka, en beri ekki kápuna á báðum öxlum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2012 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband