ÞJÓÐIN VILL EKKI ÞENNAN "HRÁSKINNALEIK"..........................................

Eins og Bjarni sagði í Silfrinu áðan, þá sjá sendimenn ESB að það er bara EINN stjórnmálaflokkur á bak við INNLIMUNARUMSÓKNINA og er nema von að þessir aðilar verði hissa???????  Og svo til að bæta gráu ofan á svart, verða þessir sömu sendimenn þess áskynja að meirihluti þjóðarinnar eru mótfallnir því að "samningaviðræður" séu einu sinni í gangi.  ER EKKI GJÁIN MILLI ÞINGS OG ÞJÓÐAR ORÐIN NOKKUÐ DJÚP OG BREIÐ?????  Það sér það hver heilvita maður að ekkert annað er í stöðunni en að stöðva INNLIMUNARVIÐRÆÐURNAR strax og helst í gær................
mbl.is „Af hverju eruð þið að þessu?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér Jóhann. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2012 kl. 14:24

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Bjarni var málefnalegur í þessu viðtali. Skildi Egill vera farinn að efast um ágæti ríkistjórnarinnar.?

Ragnar Gunnlaugsson, 29.4.2012 kl. 14:52

3 identicon

Ég fagna því heilshugar að við þjóðin fáum loks málssvara þarna inni á þingi. Svo mætti vera í fleirum málum. Bjarni var nú alltaf hlynntur ESB minnir mig en batnandi manni er best að lifa. Vonandi heldur hann áfram að impra á þessu þar til Samfylkingin og vinstri grænir hreinlega neyðist til að hlusta.

assa (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 14:56

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það kom fram í þessu viðtali við fyrrverandi fjármáráðherra El Salvador, að hugmyndir Össurar að ESB myndi leysa gjaldeyrishöftin, væru fullkomlega óraunhæfar það eina sem gerðist væri að búa til SKULD Íslendinga við Evrópska Seðlabankann, þar er ég honum sammála þótt mér finnist margt af því sem hann sagði vera óttaleg vitleysa og sumt jafnvel barnalegt.

Jóhann Elíasson, 29.4.2012 kl. 15:07

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hugmyndir Össurar að.....!!!!! Það var bullað og logið svo gegndarlaust um allar þær flóðgáttir ábata sem myndu opnast bara við það eitt að senda inn umsókn.

Er ekki komin tími á að kalla eftir utandagskrárumræðu um allan þann blekkingarleik með Alþingi og þjóðina þar sem ekki stendur lengur steinn yfir steini?

Verðu ekki þingflokkur forsætisráðherrans að bera ábyrgð á orðum sínum þegar mikilvægustu ákvarðanir um utanríkismál þjóðarinnar eru reifaðar?

Árni Gunnarsson, 29.4.2012 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband