ÓMETANLEGUR FRÓÐLEIKUR.................

Sjaldan hef ég komist í annan eins "gullmola" og bókina DAUÐINN Í DUMBSHAFI eftir Magnús Þór Hafsteinsson sem kom út núna fyrir jólin.  Ég las bókina fljótlega eftir að hún kom út og svo hef ég alltaf verið að glugga í hana síðan.  Þarna er um einstakt verk að ræða og höfundi ferst alveg sérstaklega vel úr hendi að fjalla um þetta málefni, sem ekki hefur verið fjallað mikið um til þessa.  Ég veit að þessar línur eru nokkuð seint á ferðinni en þessi bók varð til þess að ég bíð spenntur eftir næsta verki Magnúsar.................
mbl.is „Skipsflökin eru okkar Titanic“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Næst á listanum hjá mér þessi bók.

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.5.2012 kl. 08:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get lofað þér því að þú verður alls ekki fyrir vonbrigðum með hana.  Ég verð að viðurkenna að titill bókarinnar virkaði svolítið fráhrindandi á mig í byrjun.

Jóhann Elíasson, 6.5.2012 kl. 10:31

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já ekki beint upplífgandi titill en ég held að þetta sé holl lesning eigi að síður. Er að panta hana á bókasafninu.

Kolbrún Stefánsdóttir, 9.5.2012 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband