SÝNUM NÚ STUÐNINGINN Í VERKI.......

Alltaf eru það björgunarsveitirnar sem eru ofarlega á lista þegar verið er að kjósa mann ársins og er þá sama á hvaða fjölmiðli það er.  Ef við lendum í vandræðum hvort sem er á landi eða til sjó þá eru það alltaf björgunarsveitirnar sem koma okkur til bjargar sama á hvaða degi það er og hvaða tími sólahringsins líka.  Flugeldasalan er AÐALFJÁRÖFLUN björgunarsveitanna.  Því miður þá hafa fleiri aðilar verið að fara inn á flugeldamarkaðinn nú seinni árin.  Mér hefur alltaf fundist að þessi markaður sé bara EIGN BJÖRGUNARSVEITANNA og það séu allt að því HELGISPJÖLL að aðrir séu að fara inn á hann. Höfum það í huga að einkaaðilarnir, sem fara inn á þennan markað, aðstoða þig ekki eða leita að þér eða ættingjum þínum ef þú eða aðrir villast á fjöllum.  ÞVÍ SKULUM VIÐ EINGÖNGU KAUPA FLUGELDA HJÁ BJÖRGUNARSVEITUNUM.....................
mbl.is Flugeldasala í fullum gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek algjörlega undir þetta Jóhann.  Björgunarsveitirnar eiga að fá allt við getum lagt af mörkum til þeirra.  Þess vegna er lágmark að kaupa flugeldana þar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2012 kl. 16:52

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála hverju orði!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.12.2012 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband