ERU EINHVERJAR VÍSINDALEGAR RANNSÓKNIR AÐ BAKI ÞESSU????

Eða er þarna bara um að ræða yfirvarp fyrir annars konar notkun og hver skyldi sú notkun eiginlega eiga að vera?????
mbl.is Með viagra á toppi veraldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Hann ætlar sennilega að kikja við á pútnahúsi i Katmandu, skil hann vel- þessar Asísku eru flottar. - En annars ætti einhver að benda honum á að Viagra er 10x ódýrara í Asíu heldur en hér og þar er það fáanlegt í langflestum apótekum án lyfseðils- enda mjög vinsælt að smygla þessu hingað, 1000 króna gróði á hverri pillu.   --- en án djóks, í viagra og skyldum lyfjum eru æðavíkkandi efni, geri ráð fyrir því að það sé það sem hann er að spá í að sporni við háfjallaveikinni.

Óskar, 9.4.2013 kl. 02:04

2 Smámynd: ViceRoy

Rétt er sem Óskar segir. Menn hafa notað Viagra í þeim tilgangi að auka súrefnisupptöku í blóðinu til að sporna við háfjallaveiki... Og þetta er ekki eins dæmi; Sumir notast við súrefniskút, sumir hins vegar vilja það ekki og notast ekki við neitt... Ætli Viagra virki ekki fyrir þá sem vilja fara milliveginn.

ViceRoy, 9.4.2013 kl. 07:36

3 identicon

Bæði Viagra og Cialis hafa verið notuð gegn lungnaháþrýstingi (pulmonary hypertension) hjá fjallgöngufólki í mikilli hæð, þar sem súrefni er af skornum skammti. Lungnaháþrýstingur veldur því, að hjartað þarf að vinna mun meira, sem getur leitt til hjartaáfalls og jafnvel dauða. Sumir þjást af lungnaháþrýstingi dags daglega, þótt þeir stundi engar fjallgöngur. Þá er stundum gefið lyfið Revatio, sem reyndar inniheldur sama virka efnið og Viagra.

Stefán Niclas Stefánsson (IP-tala skráð) 9.4.2013 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband