EINHVER LEIÐINLEGASTA BRAUTIN OG ÞAR AF LEIÐANDI.....

Getur kappaksturinn í Mónakó aldrei orðið spennandi eða skemmtilegur.  En þeir sem koma til að sjá óhöpp og þvílíkan hasar ættu að fá eitthvað fyrir peninginn en flottan akstur og góðan framúrakstur er mjög hæpið að nokkur fái að sjá.  Mónakókappaksturinn er einhver sá fyrirsjáanlegasti á keppnisdagatalinu í yfir 95 % tilfella hefur sá sem er á ráspól unnið og virðist vera að sérstakt klúður þurfi frá þeim ökuþór til þess að þetta breytist nokkuð.  Enda varð sú raunin í dag.  Einhver mistök urðu hjá Mercedes liðinu, sem urðu þess valdandi að Hamilton varð "aðeins" í fjórða sæti en hann hóf keppnina í öðru sæti á ráslínu.  Eins og vanalega fór mest fyrir glamúr og frægu fólki en eins og venjulega þegar Mónakókappaksturinn á í hlut var keppnin ekki aðalatriðið..........
mbl.is Rosberg réði ríkjum - 30 árum á eftir pabba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband