ÞAÐ ER NÚ GOTT AÐ MAÐURINN SKULI VERA "HREINN"..................

Það væri saga til næsta bæjar ef hann myndi mæta haugdrullugur og illa lyktandi á næsta mót.  Og svo getur líka verið að hann hafi meint að hann væri hreinn sveinn.  Annars las ég útskýringu á þeirri sögn en þannig var víst að hershöfðingjar í Grikklandi hinu forna, höfðu með sér unga drengi þegar þeir fóru í herferðir, þessir drengir voru "notaðir" í stað kvenna á meðan að á herferðinni stóð.  Þeir sem EKKI höfðu farið í svona herferðir voru sagðir HREINIR SVEINAR.  Þessi útskýring á þessu máltæki þykir mér mjög trúverðug en sjálfsagt má deila um það eins og annað...........
mbl.is Usain Bolt: Ég er hreinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nær væri að skrifa þetta á ensku; "I'm clean", í stað þess að vera með "google" þýðingu.

"Pederasty" Forngrikkja er hinsvegar flókið mál, sem fáir nútíma menn skilja.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 25.7.2013 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband