BJÖRGUM HVÖLUNUM FRÁ "HVALASKOÐUNAÖFGALIÐINU".............

Og það eina sem virkar er að AUKA hvalveiðar og MINNKA hin svokölluðu "griðarsvæði" hvala.  Þarf ekki að hafa griðarsvæði hvala fyrir hvalaskoðunum? Það sem Konráð Eggertsson er að tala um þarna hefur verið þekkt lengi og margir hafa hafa talað um þetta en einhverra hluta vegna hafa fjölmiðlar og aðrir kosið að hunsa þessar upplýsingar algjörlega.  Þess í stað koma fjölmiðlar reglulega með viðtal við Sigurstein Máson, þar sem hann kemur með einhverja tilfinningaþvælu, sem viðkomandi fréttamenn halda að gangi vel í landann....................
mbl.is Hvalirnir fá ekki frið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvalirnir verða auðvitað að fá að vera í friði svo við getum drepið þá.

Allt annað er bara skepnuskapur!

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.8.2013 kl. 11:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú ert nú meiri skepnan, Haukur...

Jóhann Elíasson, 6.8.2013 kl. 11:20

3 identicon

Konráð er grænmetisæta og hvalaskoðunarmaður.

Hann kemur út úr skápnum með þetta áður en langt um líður.

Jón (IP-tala skráð) 6.8.2013 kl. 12:14

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi athugasemd var ekki fyndin í hæsta máta hlægileg.  Ég þekki Konna ágætlega og ég mæli með að svona aular eins og þú Jón haldi sig bara til hlés, enda virðist þú ekkert hafa til málanna að leggja...................

Jóhann Elíasson, 6.8.2013 kl. 12:27

5 Smámynd: Tryggvi Helgason

Það skeði við Florida í Bandaríkjunum að bátar með hvalaskoðurum var að eltast við hvalavöðu. Einn bátanna æddi yfir einn kálfinn og drap hann með skrúfu bátsins. Hvalkýrin (móðirin) fann að eitthvað var að, svo hún synti undir kálfinn og lyfti honum upp á baki sér til þess að reyna að halda í honum lífinu og stefndi svo á haf út með kálfinn á bakinu, en skoðararnir á bátunum ólmuðust á eftir þeim. Þeir reyndu svo að bera á móti því að þeir hefðu drepið kálfinn.

Tryggvi Helgason, 6.8.2013 kl. 12:31

6 Smámynd: Ólafur Gíslason

Hef tekið eftir þessu saman með ærnar.  Landinn og túristarnir flykkjast í þúsundatali upp um öll fjöll og firnindi og að lokum gefast sauðirnir upp og þeim snarfækkar á heiðum þegar líður á september og hverfa alveg í byrjun október.  Þær flykkjast til byggða og fremja þar sjálfsmorð og lauma sér í frystikistur stórmarkaða og jafnvel inn á heimili. 

 Á hverju eruð þið strákar?

Ólafur Gíslason, 6.8.2013 kl. 13:14

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það væri nú nær að þú segðir okkur frá því á hverju þú ert, Ólafur.

Jóhann Elíasson, 6.8.2013 kl. 14:01

8 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Ólafur G. , fyrir það fyrsta er Sauðkindinbúfénaður sem er vanur því að umgangast fólk, það eru hvalirir ekki.

Í annan stað eru túristarnir ekki að komnir langleiðina í að gera kindurnar heyrnalausar af hávaða eins og hvalaskoðunarbátarnir.

Annars Ólafur, hvernig myndi þér líða ef það væri stöðugt verið að blása í þokulúður inn í eyrað á þér? Fyrir utan allt hitt ónæðið, því ef kennari myndi hegða sér eins við nemanda eins og hvalaskoðunarbátarnir við hvalina þá væri sá hinn sami settur í fangelsi fyrir kynferðislega áreitni. Ég er bara að bíða eftir að einhver af hvalaskoðunarbátunum verði sakaðir um að hafa nauðgað hrefnu eða steypireið.

 Þar fyrir utan mætti hvalaskoðunar fyrirtækin taka sig til og leggja eitthvað til samneyslunar, þessi skattaundanskot sem hvalaskoðunarfyrirtækin stunda eru bara til háborinnar skammar en þau borga td ekki VSK þar sem þau telja sig vera Strædó.

Brynjar Þór Guðmundsson, 6.8.2013 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband