OG HVERT VAR SVO ÚRTAKIÐ????????

Og hverjir voru eiginlega spurðir?  Alltaf þegar ég sé svona skoðanakannanir, þá dettur mér í hug það sem einn prófessorinn við ADH í Kristiansand sagði, Það er ekkert að marka skoðanakannanir, fyrir það fyrsta þá segir fólk bara eitthvað þegar það er spurt, í öðru lagi er "niðurstaðan" oftast þannig að hún falli að hugmyndafræði þess sem könnunin er gerð fyrir og svo fer niðurstaðan eftir því hvernig úrtakið er valið.  Niðurstaðan hjá honum var sú að óháðar skoðanakannanir eru ekki til.
mbl.is 3% neyta hvalkjöts reglulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo má ekki gleyma að framboðið á kjöti getur haft veruleg áhrif á svona könnun. Ég þekki fólk sem á í mestu vandræðum með að útvega sér hvalkjöt - það getur ekki svarað "já" við spurningu eins og "kaupirðu hvalkjöt reglulega?"

Gulli (IP-tala skráð) 16.12.2013 kl. 12:42

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Aðferðarfræðin er ekki gefin upp, hún skiptir verulegu máli.

Ég borða hvalkjöt 2 til 3 í mánuði, stundum oftar. Hvalkjöt er dýrindis matur og hugmyndaflugið eitt takmarkar möguleikana við matreiðslu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.12.2013 kl. 12:45

3 identicon

Þessar fullyrðingar eru svo í stíl við olíuflutningaskipstjórann sem sagði að það hefði einungis lekið 1% af farminum

Í sjónvarpsfréttum RUV í gær þá fullyrti læknir að hætta væri á aukinni krabbameini hjá kvenfólki því það "drykki meir áfengi" og féttamaðurinn samþykkti það athugasemdarlaust

Ekki það að krabbamein í blöðruháls er mun algengara en brjóstakrabbamein en samt er "skimað" fyrir brjóstakrabbameini (og læknirinn hefur atvinnu af því) 

Grímur (IP-tala skráð) 16.12.2013 kl. 12:58

4 identicon

Spurt er hvort þú kaupir hvalkjöt og svo kemur túlkuninn, aðeins þeir sem kaupa hvalkjöt borða hvalkjöt, en það er rangt, því oftast er það 1 á heimilinu sem kaupir inn, hinir 4 borða það.

Dagur Bragason (IP-tala skráð) 16.12.2013 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband