ENDURSPEGLAR VINSÆLDIR FÓTBOLTANS HÉR Á LANDI

Það getur reynst erfitt að taka einn einstakling út úr annars frábæru liði sem landslið karla er í knattspyrnu.  Þar með er ég síður en svo að segja að Gylfi sé ekki vel að þessum titli kominn og vil óska honum til hamingju, en það er mitt álit að Aníta Hinriksdóttir hafi ekki unnið síðri afrek eru kannski Evrópumet, Íslandsmet og Heimsmet frekar lítilvæg í heimi íþróttanna ef þau eru ekki á sviði boltaíþrótta????
mbl.is Gylfi Þór Sigurðsson íþróttamaður ársins 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru örugglega margir ósammála, EN hafa ber í huga...

Aníta mun fá þessa viðurkenningu, það er bara spurning um hvenær. Með fullri virðingu fyrir henni að þá verður fólk að geta tekið tillit til heildaraðstæðna, Aníta var meistari í sínum aldursflokkum, ekki fullorðinsflokkum. Til að setja þetta í betra samhengi þá er Aníta lægra skráð í sinni grein heldur en Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari, hún var einmitt í 2. sæti í kjörinu í fyrra, ekki þótti fólki hún hafa skarað jafnt framúr eins og fólki finnst Aníta hafa gert.

Annars var þetta nokkuð verðskuldað hjá Gylfa. Landsliðið vegur mikið stærra hjá honum heldur en félagsliðið, þó svo það sé gífurlegur árangur að fá að spila með svo hátt skrifuðu félagsliði. Hann var bindijárnið í ótrúlegur árangri og viðsnúningu Íslenska landsiðsins í knattspyrnu. Landsliðið var sagt það "lakasta" í sínum riðli, á þessum tíma hefur liðið farið upp um 80+ sæti á heimslista FIFA, það mesta í öllum heiminum.

Ekki láta nafnið á viðurkenningunum vega meira heldur en staðreyndirnar um aðstæður og fjölda iðkennda ákveðinna greina.

Arnar (IP-tala skráð) 28.12.2013 kl. 21:38

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það hefur enn og aftur sýnt sig að norðurlandamet, evrópumet og heimsmet í hinum og þessum greinum mega sín lítils í samkeppni við meðalmanninn í boltaíþróttunum. Það er dapurt ef meta á frambærileika íþróttamanna til þessa tiltils eftir áhorfi á viðkomandi íþrótt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.12.2013 kl. 22:07

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ja - ekki veit ég hver Gylfi Þór er og langar ekki að vita - þannig að fótboltinn er nú kannski ekkert vinsæll

Rafn Guðmundsson, 28.12.2013 kl. 22:44

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við skulum nú sýna smá sanngirni, ég held nú að all flestir viti hver Gylfi er og mikilvægi hans fyrir landsliðið er óumdeilt.  En maður sem ekki hefur unnið til verðlauna hér á landi eða erlendis (kannski hann hafi unnið titil með FH en það er undirmálslið og telst ekki með) skuli vera valinn Íþróttamaður ársins á Íslandi er skandall.....................

Jóhann Elíasson, 28.12.2013 kl. 23:11

5 Smámynd: Rafn Guðmundsson

örugglega margir sem vita hver Gylfi er en EKKI flestir

Rafn Guðmundsson, 28.12.2013 kl. 23:56

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki sé ég neina ástæðu til að deila við þig útaf þessu Rafn, sitt sýnist hverjum....................

Jóhann Elíasson, 29.12.2013 kl. 00:07

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ekki veit ég hver Gylfi Þór er, en ég veit hver Aníta Hinriksdóttir er.

Þetta er algjörlega fyrir neðan allar hellur að ganga framhjá afreksverkum Anítu og láta miðlungs fótbolta gæja fá titilinn.

En svona er þetta á Íslandi og hefur lengi verið, boltamenn fá titlana þó svo að þeir séu miðungs menn í sinni grein.

ég var reindar búinn að spá fyrir þessu fyrr á árinu hér á þessu mbl.is blogginu, að Aníta yrði ekki virt af sínum afrekum af íþróttafréttamönnum og sú spá hefur orðið að veruleika.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 29.12.2013 kl. 04:01

8 identicon

Þar sem Aníta er ekki með fótbolta í heilastað þá átti hún aldrei séns

Sumarliði (IP-tala skráð) 29.12.2013 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband