FRÆNDUR OKKAR OG "VINIR" NORÐMENN

Ef samskipti okkar við Norðmenn, í gegnum tíðina eru skoðuð kemur margt sérkennilegt í ljós, ekki þarf neinn speking til að sjá að þar hafa Norðmenn gert allt sem þeir hafa getað til að standa í vegi fyrir okkur og eru dæmin nokkuð mörg um það.  Svo ekki sé nú talað um söguna og fleira tengt menningunni sem þeir  reyna að eigna sér og með sögufölsunum hafa þeir t.d komið því inn hjá yngri hluta Norsku þjóðarinnar að Íslendingasögurnar séu Norskur menningararfur.
mbl.is Norðmenn að einangrast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Þ Ingólfsson

Þú skalt sleppa því að tala illa um norðmenn, þeir eru ein besta vinaþjóð íslendinga og hafa tekið við atvinnulausum íslendingum opnum örmum. Ég get vottað það að það er gott að vera íslendingur í Noregi.

Stefán Þ Ingólfsson, 21.1.2014 kl. 14:37

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Málin eru ekki svona svört eða hvít.

Það er hægt að finna eitthvað jákvætt og neikvætt hjá öllum löndum og einstaklingum.

Jón Þórhallsson, 21.1.2014 kl. 16:43

3 identicon

Íslenska er upphaflega mál norskra innflytjenda og fólkið í þessum tveimur löndum talaði sama mál fram á 14du öld. Þetta ber að hafa í huga, auk þess er hvergi betra að vera Íslendingur í útlöndum en í Noregi. Og ef á að fara að metast eða dæma "okkur" Norðmenn vegna ágreinings við Íslendinga, veit eg ekki hvor þjóðin færi ver út úr þvi. Hinu má svo ekki gleyma að þjóðirnar tvær eiga margt sameiginlegt, enda sennilega engar tvær þjóðir líkari.

Tryggvi Gíslason (IP-tala skráð) 21.1.2014 kl. 17:58

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jæja, Stefán það vill svo til að ég hef líka búið í Noregi og öðrum löndum og ekki fannst mér betra að vera Íslendingur í Noregi en t.d í Skotlandi.   Ég er ekki að tala illa um Norðmenn heldur er ég að benda á að þeir hafa ekki verið nein sérstök "vinaþjóð" okkar í gegnum tíðina og ef menn eru í einhverjum vafa um það er ekkert annað en að skoða staðreyndirnar.

Jóhann Elíasson, 21.1.2014 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband