AFTÖKUR ERU VILLIMENNSKA OG MORÐ...........

Það hefur ENGINN rétt til að taka líf annars manns nokkuð sama þótt hann beiti fyrir sig einhverjum embættistitli innan samfélagsins eins og t.d dómaratitli.  Það er rétt að það þarf að taka glæpamenn úr umferð, í samfélaginu en að dæma menn til dauða er ekkert annað en villimennska og siðferðislega RANGT og ætti ekki að þekkjast í samfélagi siðaðra manna.....................


mbl.is Engdist um af sársauka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Aftökur eru villimennska og ættu ekki að þekkjast. Tekið er fram að maðurinn hafi engst af sársauka í nærri hálftíma áður en hann dó. Af því tilefni velti ég fyrir mér hvort konan sem hann nauðgaði og myrti hafi engst af sársauka síðustu stundirnar sem hún lifði?

corvus corax, 25.1.2014 kl. 22:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú ert þarna að tala um að fyrst hann nauðgaði manneskju og drap, þá eigi hann skilið að vera líflátinn.  Það er þitt sjónarmið en með því að dæma manninn til dauða og fullnusta dóminn er verið að fara niður á sama stig og hann var.  Persónulega tel ég að enginn maður hafi rétt til að taka líf annars manns jafnvel þótt hann skýli sér á bak við embættispróf í lögfræði...............

Jóhann Elíasson, 25.1.2014 kl. 23:06

3 Smámynd: Mofi

Fara niður á sama stig?  Hvers konar rugl er þetta?  Á ekki að gera greinarmun á milli þess að taka morðingja af lífi eða maður sem velur að pynta og myrða saklausan einstakling?  Eitthvað mikið að þegar menn sjá ekki mun á seku fólki og saklausu, á morðingjum og saklausum fórnarlömbum.

Mofi, 26.1.2014 kl. 00:38

4 Smámynd: Riddarinn

Hann fékk bara það sem hann átti skilið.

Riddarinn , 26.1.2014 kl. 04:50

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er alveg sammála þér Jóhann, aftökur eru viðbjóður og ættu ekki að þekkjast í siðuðu samfélagi. Svo er að sjá að þessi sprautuaðferð kanana sé eitthvert tilraunaverkefni.

Afstaða Mofa kemur mér ekki á óvart. Þessi sjálfskipaði útvaldi einkavinur Guðs, og aðrir slíkir, eru gersamlega að springa af allri inntökunni á heilögum anda og vilja Guðs. En þegar menn eru komnir á svo hátt stig í sjálfsblekkingunni hafa þeir glatað grunninum í kenningu Krists. Gamla testamenntið er orðið þeirra ær og kýr. Þeir hafa kastað frá sér samkenndinni, samúðinni, kærleikanum (nema til einkanota), umburðalyndinu, fyrirgefningunni o.s.f.v. Slíkir smámunir eru í bestafalli til spari. Þar sem þessir hræsnihaugar eru syndlausir með öllu spara þeir yfirleitt ekki grjótið á synduga.

"Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig", Hver ætli hafi sagt þessi orð og hvað ætli hann hafi átt við með þeim? Eiga þessi orð eingöngu við um þá sem eiga þau skilið og hafa til þeirra unnið?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.1.2014 kl. 08:17

6 identicon

ekki má

gleyma að það hafa margir verið dæmdir til dauða saklausir .og stórtæku morðingjarnir ganga lausir

 http://www.youtube.com/watch?v=bFGhMBUORx8

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 26.1.2014 kl. 09:44

7 identicon

En fjölskylda hins dæmda, Riddari, fékk hún það sem hún átti skilið? Að þurfa að upplifa dauðastríðið?

Og ef þú tekur þetta viðhorf þitt til skoðunar, er það þá þín einlæg skoðun að t.d. manndráp á Íslandi séu litin alltof mildum augum?

Eigum við að dæma til pyntingar og dauða. Þá fengi morðinginn það sem hann ætti skilið að þínu mati.

Segjum að sonur þinn myndi veikjast heiftarlega á geði í kringum tvítugsaldurinn (það er sá aldur sem fullorðinsgeðsjúkdómar stinga sér oft niður) og drengurinn fer að heyra raddir sem skipa honum að gera þetta og hitt. Drepur manneskju. Eigum við að dæma hann til dauða og pynta hann í hálftíma á undan. Og vera ánægð með það? Hugsaðu málið og segðu okkur hvað þér finnst.

Jón (IP-tala skráð) 26.1.2014 kl. 10:08

8 Smámynd: Elsabet Sigurðardóttir

Íslendingar eru engin undantekning þegar kemur að mannréttindamálum mannréttindasáttmála sameinuðu þjóðanna þar segir að allir skulu eiga rétt til lífs en ýmsar aðferðir hafa verið notaðar hér á landi og yfirvöld ekki komið í veg fyrir að fólk látist með einum eða öðrum hætti og mjög slæm meðferð isl.stjórnsýslu, vil ég sérstaklega nefna þá þöggun heilbrigðismistaka og meðferð þeirra sjúku að koma þeim ekki til hjálpar eins og atburðurinn í hraunbæ, þar sem alvarlega veigur einstaklingur var myrtur

Elsabet Sigurðardóttir, 26.1.2014 kl. 12:35

9 identicon

Góð athugasemd frá Mofa. Ég er alveg sammála honum og Riddaranum.

Ármann Birgisson (IP-tala skráð) 26.1.2014 kl. 12:46

10 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er bara verið að launa líku líkt. Þetta hefur verið visst catharsis fyrir ættingja fórnarlambsins. Í einhverjum löndum tíðkast að bjóða ættingjunum að taka morðingja af lífi - af einmitt þeirri ástæðu.

Ásgrímur Hartmannsson, 26.1.2014 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband