ÞAÐ ER GREINILEGA EKKI ALVEG Í LAGI MEÐ MENN.................

Við erum rétt að komast fyrir vind eftir efnahagshrunið og þá vantaði ekki að  verið væri að tala um SIÐBLINDU og hvernig hinir ýmsu aðilar (útrásarvíkingar og allra handa lýður) setti heilu þjóðfélögin á hliðina og margar fjölskyldur settar á guð  og gaddinn.  En svo kemur einn þeirra allra verstu og heldur hér fyrirlestur og menn eru svo vitlausir að þeir  GREIÐA tugi þúsunda fyrir það eitt að sjá manninn og hlusta á bullið í honum.  ER EITTHVAÐ SKRÍTIÐ AÐ MAÐUR SPÁI Í ÞAÐ HVORT 2007 SÉ KOMIÐ AFTUR?????
mbl.is Kostar 50 þúsund á úlfinn frá Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hélt að þetta væri grín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2014 kl. 18:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er náttúrulega hálfgert grín.  En mér finnst mesta grínið í þessu hvernig fólk lætur hafa sig að fíflum og "hampar" því sem er þvert á öll okkar siðferðisgildi og "dansar í kringum gullkálfinn".  Menn virðast vera ansi fljótir að gleyma.................

Jóhann Elíasson, 12.3.2014 kl. 19:48

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já, það er svo auðvelt að láta mata sig á upplýsingum og ganga í takt við ....... bara eitthvað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2014 kl. 22:40

4 Smámynd: Guðlaugur Guðmundsson

Ég tek undir með ykkur, það er ótrúlegt hvað við erum fljót að gleyma og siðblindan að koma aftur.  Það verður gaman að fylgjast með hverjir sækja þennan fyrirlestur, eða námskeið, eins og fyrirsvarsmenn Belforts hér á landi vilja víst kalla þetta.  Hann á jú að kenna okkur aðferðir sínar, sem dómstólar í Bandaríkjunum dæmdu ólöglegar fyrir aðeins örfáum árum síðan.  Hvað er eiginlega að okkur?  Við erum ekki í lagi.

Guðlaugur Guðmundsson, 13.3.2014 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband