KJÖR LÆKNA VITA FLESTIR UM OG ERU SVO SEM EKKERT LEYNDARMÁL

Þetta var ekki það sem kallað hefur verið eftir enda er fremur auðvelt að verða sér úti um upplýsingar um kjör lækna með því hreinlega að gúgla þau á "netinu".  En hitt hefur reynst erfiðara, enda kannski viðkvæmt mál, læknar hafa ekki viljað upplýsa um þær kröfur sem þeir gera í kjaraviðræðunum....  Eru þessar kröfur eitthvað leyndarmál sem ekki þola dagsljósið?????


mbl.is Læknar útskýra kjör sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Geir Leifsson

Sæll Jóhann

Það er alltaf betra að kynna sér efni áður en maður tjáir sig opinberlega. Ef þú hefðir haft fyrir því að lesa skjalið sem þessi frétt fjallar um þá hefðir þú fengið svar við þessari spurningu. Þar stendur meðal annars:

Trúnaður ríkir við samningaborðið

Samninganefnd lækna er ekki heimilt að ræða kröfur sínar eða tillögur SNR opinberlega skv. lögum um vinnudeilur en þar stendur í 25. gr.:

 

    Samningsaðilum er skylt að sækja eða láta sækja samningafund sem sáttasemjari kveður þá til.

    Sáttafundi skal halda fyrir luktum dyrum.

    Á sáttafundi skal leggja fram eftirrit þeirra skjala sem farið hafa milli aðila í deilunni, enda hafi þau ekki verið send ríkissáttasemjara áður.

    Bannað er að skýra frá eða leiða vitni um umræður á sáttafundum og tillögur sem fram kunna að hafa verið bornar nema með samþykki beggja samningsaðila.

     

    Heimild: Lög um stéttarfélög og vinnudeilur


    Læknar hafa virt þennan trúnað þó að fjármálaráðherra hafi kosið að gera það ekki.

    Þess ber að geta að fjármálaráðherra hefur þar að auki opinberlega sagt ósatt um kröfur lækna.

    Björn Geir Leifsson, 19.12.2014 kl. 09:29

    2 Smámynd: Jóhann Elíasson

    Björn ég hef kynnt mér málið alveg nógu og vel og þessi ummæli þín gefa það bara til kynna hvers konar þverhaus þú ert og heldur að það sem þú lætur frá þér sé það eina rétta.  Þarna er ég ekki að tala um upplýsingar frá samningafundum enda vita allir að þær eru trúnaðarmál og eiga alls ekki að fara út úr samningaherberginu.  Hitt er svo annað mál að verkalýðsforingjar hafa ekki séð neina ástæðu til annars en að gefa upp helstu kröfurnar, sem þeir fara með á fundinn, þó svo að það sé trúnaðarmál hvað fer fram á fundinum.  En einhverra hluta vegna hafa læknar EKKI VILJAÐ GEFA KRÖFUR SÍNAR UPP OPINBERLEGA en hvað það er sem veldur er svo annað mál.  Það sem þú skrifar þarna er dæmigert fyrir öll þín skrif þú vitnar í skrif sem ekki eru málinu alveg viðkomandi og losar þig þannig undan allri ábyrgð á því kjaftæði sem þú setur frá þér.  Hvort þú ert viljandi að "misskilja" hlutina eða það er eitthvað annað ætla ég ekki að dæma um.

    Jóhann Elíasson, 19.12.2014 kl. 11:05

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband