MEIRIHLUTINN FER EKKERT AÐ BYRJA AÐ HLUSTA Á BORGARBÚA NÚNA...

Frekar en áður - Eða reiknaði einhver með því????? Fyrri meirihluti, með þá Dag B og Jón Gnarr í broddi fylkingar, vann að því hörðum höndum að koma Reykjavíkurflugvelli í burtu.  Einhverjar breytingar vildu borgarbúar á stjórn borgarinnar, en greinilega ekki nægar.  Jón Gnarr hætti afskiptum af stjórnmálum og þar með var sameiningartákn Besta Flokksins farið það var skipt um nafn á honum og hann rann inn í "Bjarta Framtíð" sem reyndist ekki svo björt eftir allt saman því flokkurinn tapaði stórt í næstu borgarstjórnarkosningum.  En þá komu Píratar og Vinstri Grænir Degi B og hans fólki til bjargar.  Dagur B myndaði meirihluta með "Bjartri Framtíð", Pírötum og Vinstri Grænum og þá gátu Dagur B og félagar haldið áfram að vinna að því að koma flugvellinum úr Vatnsmýrinni eins og þeim væri borgað fyrir það - Eða skyldu þeir fá borgað fyrir það??? NÚ ER BARA TÍMI TIL KOMINN AÐ RÍKISSTJÓRNIN STÖÐVI ÞESSA VITLEYSU HJÁ DEGI B OG FÉLÖGUM ÞÓTT FYRR HEFÐI VERIÐ.......


mbl.is Skilaboð til meirihlutans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki gleyma Sjálfstæðisflokknum.  Hvernig er það, þurfti ekki að breyta skipulagi til að Gísli Marteinn fengi kaffihúsið sitt?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 08:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Reyndar var ég að fjalla um flugvallarmálið þarna.  Ég veit ekki til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi látið mikið að sér kveða þar.  Ég þekki ekki heldur til þessa kaffihúss Gísla Marteins og hef engar forsendur til að fjalla um það.

Jóhann Elíasson, 4.5.2015 kl. 08:12

3 identicon

Eða skyldu þeir fá borgað fyrir það ???  Hvernig fá þeir borgað heldurðu? 

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 08:26

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég velti þessari spurningu bara fyrir mér og set þetta fram sem spurningu..............

Jóhann Elíasson, 4.5.2015 kl. 08:57

5 identicon

Allt í lagi að velta þessu fyrir sér.  Hver ætli sé prísinn á Vinstri grænum?  Frír kaffibolli hjá Gísla Marteini?  Maður getur mátað þetta við dýraríkið.  Rotturnar fá að éta upp úr ruslinu.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 09:33

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef Rikið tekur ekki flugvallarsvæðið eignarnámi, þá verður flugvellinum lokað.

Skoðanakannanir gera litið í því að stöðva lokun flugvallarins, menn ættu að muna að Gnarrinn og Dagurinn tröðkuðu á beinu lýðræði, ef ég man rétt þá voru það 70 þúsund undirskriftir.

Gnarrinn og Dagurinn þykjast vera ákafir fylgismenn beins lýðræðis, en svo vitum við núna, það er bara ef niðurstöðurnar eru hliðhollar þeirra hlið málsins.

Svo var fólk að tala um að kjósa Gnarrinn til Forseta, maður sem traðkar á beinu lýðræði bara af þvi hann er ekki ánægður með niðurstöðuna. Það get ég ekki skilið.

kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 4.5.2015 kl. 14:05

7 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Á sínum tíma var kosið um flugvallarmálið Jóhann. Hvað villtu hafa margar atkvæðagreiðslur um sama mál?

Jónas Ómar Snorrason, 4.5.2015 kl. 20:04

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hver var að tala um atkvæðagreiðslur????  Hér er verið að tala um hvort borgaryfirvöld telji að borgarbúar séu fyrir þá eða öfugt.  En það er kannski eitthvað fyrir ofan þinn skilning, Jónas Ómar?????

Jóhann Elíasson, 4.5.2015 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband