ER HÁLMUR Í HAUSNUM Á ÞESSU "RÉTTTRÚNAÐARLIÐI"?????

Þarna vísa ég til greinar í Morgunblaðinu í dag 3 júní, greinin er á blaðsíðu 20.  Eftir að hafa lesið þessa grein, var ég mjög hugsi.  Getur verið að nokkur viti borinn maður sendi svona lagað frá sér?  Eða eru menn svo gjörsamlega veruleikafirrtir og svo „fastir“ í heimi lista og menningar að þeir geri sér ekki nokkra grein fyrir því hvernig hinn raunverulegi heimur er og virkar?  Og að fara að tala um það að múslimar í Feneyjum hafi engan opinberan stað til að biðjast fyrir á og því hafi „listaverk“ Íslendinga verið eins og himnasending fyrir þá.  Sem sagt að Íslendingar álitu það hlutverk sitt að færa múslimum í Feneyjum mosku svo þeir gætu stundað bænir.  Og alltaf kemur þetta „Rétttrúnaðarlið“ með sömu frasana, ef einhver leifir sér að hreyfa mótmælum við „Rétttrúnaðarbullinu“ þeirra; ÞETTA ERU BARA FORDÓMAR, KREDDURÞEKKINGARSKORTUR OG SVO ERU ÞETTA ALLT RASISTAREn getur ekki verið að það örli eitthvað á þekkingarskorti hjá þessuRétttrúnaðarliði“????  Sem betur fer var þessum ófögnuði lokað af yfirvöldum í Feneyjum, en þessi gjörningur hefur orðið til þess að nú er litið á okkur Íslendinga sem algjöra villimenn og að við lifum í einhverjum ímynduðum heimi langt fyrir utan raunveruleikann og eigum ekki skilið að vera innan um siðmenntað fólk.  Verum bara fegin að yfirvöld í Feneyjum höfðu vit fyrir „Rétttrúnaðarliðinu“ á Íslandi og takmörkuðu þann SKAÐA, sem land og þjóð, hefur þegar orðið fyrir vegna þessarar vitleysu....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband