SÖKIN ER ALDREI ALFARIÐ HJÁ ÖÐRUM AÐILANUM, ÞEGAR TVEIR DEILA

En á þá vegu hefur málflutningur Páls Halldórssonar verið allan þann tíma sem þessi deila hefur staðið.  En er hann ekki bara helsti OFBELDISMAÐURINN í þessu máli?????


mbl.is Bálreið eftir „ofbeldislög“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi deila ummönnunar og kvennastétta við ríkið er búin að standa í áratugi og nú er bara nóg komið. Það verður ekki hlustað á fátæktarhjal ríkisins og ekkert þýðir lengur að koma með gömlu margsviknu loforðin. Páll Halldórsson er að vinna vel fyrir sitt fólk, það er ekki hans hlutverk að skaffa ríkinu ódýrt vinnuafl svo hægt sé að lækka skatta hátekjufólks, auðlindagjöld og gefa fiskistofnana.

Jós.T. (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 02:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jós T, þetta er með allra mesta bulli sem ég hef lesið og hef ég þó séð ýmislegt í gegnum tíðina ekki síst af þinni hálfu og aðila sem tilheyra vinstri hjörðinni.  Fyrir það fyrsta hefur Páll Halldórsson verið eins ómálefnalegur, í öllum fjölmiðladeilum og hægt er, það er enginn að tala um að skaffa ríkinu ódýrt vinnuafl en ef á að meta menntun til launa þá verða ríkisstarfsmenn að sýna það að þeirra menntun sé þess verð að borga sérstaklega fyrir hana. Ég þekki dæmi um einstaklinga sem eru með mastersgráður á mastersgráður ofan en eru alveg hryllilegir starfskraftar og í opinbera geiranum er það langur "prosess" að segja upp vanhæfu starfsfólki. Að mínum dómi er það ekki menntunin sem á að meta til launa heldur einstaklingurinn og hæfni hans til að sinna því verki sem honum er falið. Ég get ekki séð að Páll sé nokkuð að gera fyrir sitt fólk á meðan hann fer fram eins og hann gerir, með ofbeldi og yfirgangi.  Og með þennan ferkantaða "tréhest" , sem formann samninganefndar BHM, sé ég ekki að verði samið og þá kemur bara til þess að deilan fer fyrir kjaradóm.

Jóhann Elíasson, 17.6.2015 kl. 06:27

3 identicon

Og enn hraunar síðueigandi yfir svarendur með ómálefnalegum málflutningi.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 10:31

4 identicon

Sæll.

Lausnin hér er að einkavæða grimmt, laun opinberra starfsmanna eiga að ráðast af framboði og eftirspurn. Það gengur ekki að laun opinberra starfsmanna hækki meira en laun á almennum markaði:

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/06/15/laun_opinberra_starfsmanna_haekka_meira/

Menntun á ekki að meta til launa, laun eiga að fara eftir því hve mikil verðmæti fólk skapar. Það er ekki svo langt síðan að bæði kennaranám og hjúkrunarfræðinám var ekki á háskólastigi. Erum við betur sett með háskólamenntaða kennara og háskólamenntaða hjúkrunarfræðinga?

Af hverju geta einkafyrirtæki ekki sinnt því sem t.d. Sýslumaðurinn í Rvk gerir? Af hverju má ekki hleypa einkaaðilum að í heilbrigðisþjónustunni?

Helgi (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband