ERU MENN AÐ NÁ SÉR Í VINSÆLDIR MEÐ ÞVÍ AÐ GRÍPA TIL OFNOTAÐRA "FRASA"?????

Það er nefnilega leiðinda misskilningur að VERÐTRYGGINGIN sé vandamálið það er VERÐBÓLGAN sem er vandamálið.  Hvort ætli komi á undan hænan eða eggið?  Vegna verðbólgunnar hækka verðtryggðu lánin.  Þess vegna hefur afnám verðtryggingar ein og sér afskaplega lítil áhrif á skuldirnar en ef stjórnmálamennirnir vinna í því að halda verðbólgunni í skefjum, þá yrði þar mesta kjarabótin sem landsmenn geta fengið.  En á meðan menn skilja ekki grundvallaratriðin þá er ekki hægt að reikna með miklu.............


mbl.is Vandinn er verðtryggingin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Elfar Gylfason

Auðvitað er verðbólgan vandamálið, en eftir því sem þú bætir á verðbólgubálið eykst vandinn.  Það gerist t,d. á þann hátt að þegar verðbólga eykst, þá hækkar verðtryggt lán samkvæmt einhverri bjánalegri reiknireglu.  Það verður svo til þess að þeir sem verða að greiða auknar afborganir af verðtryggðu lánunum þurfa hærri tekjur til að dekka það.  Þannig hækka vörur í verði og laun hækka svo í kjölfarið sem veldur........  MEIRI VERÐBÓLGU !!!

Getur verið að þú hafir ekki skilið grundvallaratriðin Jóhann???

Högni Elfar Gylfason, 25.8.2015 kl. 18:15

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki minnsti möguleiki á því að ég skilji ekki grundvallaratriðin, Högni. Málið er að það er verðbólgan, sem veldur hækkununum ekki verðtryggingin en það er svo hvernig verðtryggingin er útfærð hversu stórt það vandamál verður.MENN ÞURFA AÐ GERA SÉR GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ EIN OG SÉR VELDUR VERÐTRYGGINGIN EKKI VERÐBÓLGU

Jóhann Elíasson, 25.8.2015 kl. 19:53

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

það er rétt, ein og sér veldur verðtryggingin ekk verðbólgu

Kristbjörn Árnason, 25.8.2015 kl. 20:27

4 Smámynd: Högni Elfar Gylfason

Auðvitað er það ekki eingöngu verðtryggingin sem veldur verðbólgu, en hún magnar hana stórlega upp ef hvort tveggja er til staðar. Virkar kannski ekki ósvipar og snjóbolti sem stækkar eftir því sem hann rennur lengra niður brekkuna. En þótt verðtrygging yrði bönnuð, þá væri það að sjálfsögðu ekki nóg eitt og sér. Skynsamleg efnahagsstjórnun verður alltaf að vera til staðar.

Högni Elfar Gylfason, 26.8.2015 kl. 11:52

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Högni, þú ættir að fara að kynna þér grundvallaratriðin í hagfræði betur......

Jóhann Elíasson, 26.8.2015 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband