ERU ENGIN TAKMÖRK FYRIR HROKANUM OG SJÁLFSÁNÆGJUNNI HJÁ ÞESSUM MANNI?

..En ætli Leppalúði sé dauður?  En það er sko síður en svo fyrir hans aðkomu að Ices(L)ave málinu að það leystist svo farsællega sem raun ber vitni.  Ef hefði verið farið að hans tillögum í málinu hefði Íslenska ríkið orðið ábyrgt fyrir skuldinni og Íslendingar settir í skuldaklafa, sem hefði riðið okkur að fullu.  Það væri nú ekki úr vegi að rannsaka aðkomu hans að "kaupunum" á Landsbankanum á sínum tíma.  Sjálfsagt kæmi sitthvað fram, sem ekki þyldi dagsins ljós.  Eitt er víst að hann hefði gott af því að vera nokkur ár á "Hrauninu" og hugsa sinn gang. 


mbl.is „Grýla er dauð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þessi maður skuldar þjóðinni tveggja ára vinnutap fyrir það sem hún þurfti að gera til að forðast að fá reikninginn fyrir þessu glæpaspili í hausinn.

Hann verður ekki velkominn hér fyrr en hann hefur gert upp þann reikning. Ekki frekar en sá sem yfirgefur veitingastað án þess að borga fyrir matinn.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.9.2015 kl. 17:35

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Vel orðað Guðmundur

Ómar Gíslason, 21.9.2015 kl. 17:43

3 identicon

Einn hákarlinn sem slapp.... 

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 21.9.2015 kl. 20:29

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vonandi er hann ekki alveg sloppinn, vonandi kemur eitthvað út úr þessari hópmálssókn svo hann verði "negldur"...

Jóhann Elíasson, 21.9.2015 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband