GOTT OG ÞARFT FRAMTAK

Loksins er þorskurinn kannski að hljóta þann sess hjá landsmönnum, sem honum ber.  Það er ekki orðum aukið að þorskurinn er "grunnurinn" að lífsgæðum okkar Íslendinga.Nú seinni áratugina hafa fleiri tegundir sjávarafurða komið við sögu þannig að hlutur þorsksins hefur minnkað en enn er hann stór hluti.  Ég er ekki viss um að fólk almennt geri sér grein fyrir því hversu STÓRAN þátt þorskurinn á í sjálfstæði okkar og er það sem hefur gert efnahag okkar svo sterkan, sem raun ber vitni.  Ekki veit ég til þess að neinn Íslendingur hafi lofsungið þorskinn í bók eða nokkur hafi haft fyrir því að skrá niður söguna út frá því hvað þessi vanmetni fiskur hefur gert fyrir okkur landsmenn, þarna er (að því að ég best veit), fyrsti vísirinn að því.  Árið 1998 kom út stórmerkileg bók ÆVISAGA ÞORSKSINS eftir Mark Kurlansky, þetta er eina bókin sem ég hef rekist á um þorskinn (fyrir utan einhverjar matreiðslubækur).


mbl.is Haldið upp á dag þorsksins í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband