LÁTUM VIÐ ENDALAUST "FÓÐRA" OKKUR Á EINHVERJU BULLI?????

Þetta "Túrbull" er svo mikið kjaftæði að ég get ekki lengur orða bundist.  Fyrst og fremst er þarna um að ræða Virðisaukaskatt sem leggst ofan á ALLAR neysluvörur og flestalla þjónustu.  Hreinlætisvörur (þar með talin dömubindi og túrtappar) eru neysluvörur og bera 24% virðisaukaskatt, svo er einnig með allar vörur til raksturs, sem flestir karlmenn þurfa að notast við.  Það hefur löngum verið talað um það að UNDANÞÁGUR í virðisaukaskattkerfinu séu of margar en í þessu tilfelli vilja nokkrir aðilar FJÖLGA þeim með því að fella niður VSK af þessum vörum.  Ef á að fella niður virðisaukaskatt af dömubindum og túrtöppum hvaða sanngirni er þá í því að fella ekki niður virðisaukaskatt af vörum til raksturs???  Eins og ég sagði áður þá er þessi umræða komin út í svo mikið bull og vitleysu að það hálfa væri nóg.  Að sjálfsögðu dettur engum pólitíkus, með fulla og óskerta greind í hug að hlaupa eftir svona vitleysu (Vinstri hjörðin hefði örugglega skoðað málið mjög vandlega en sem betur fer er hún ekki lengur við völd), en samt sem áður er reynt að koma fram  með svona vitleysu................


mbl.is Legið skattlagt um allan heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ekki eru beysin málefni þeirra sem hafa ekki um annað að hugsa en vsk á túrtappa! Hvernig komst þetta fólk á þing?

Tómas Ibsen Halldórsson, 22.11.2015 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband