ÞAÐ ERU EKKI ALMENNIR STARFSMENN, SEM "HOLA" FYRIRTÆKIN INNANFRÁ.

Nú gengur framkvæmdastjóri samtaka Verslunar og Þjónustu skrefinu lengra í að "reyna að" réttlæta hærra vöruverð á Íslandi en er í USA og ESB.  Nú segir hann að almennir starfsmenn séu rammþjófóttir andskotar og þeir séu helsta ástæðan fyrir því að verð vöru sé svona hátt.  En hvernig ætli "eigendur" fyrirtækjanna gangi um þau og hvar skyldi þeirra "neysla" koma fram?  Það er mikið umhugsunarefni hvernig það geti gengið upp að fyrirtæki sem ekki skilar neinum hagnaði árum saman geti séð heilu fjölskyldunum farborða og þá er ekki verið að tala um að fjölskyldurnar "lepji dauðann úr skel".


mbl.is Er íslenskt starfsfólk þjófóttara?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála þér! Hvernig fá þeir þessa tölu út? 41%  Og í Evrópu er talið að þetta séu 29%. Svo hvernig fá þau þessa tölu? þarna stendur reyndar " telja að" þeir semsagt vita ekki rassgat um þetta en kjósa að ýmunda sér þarna eh tölu. Ég held nú að þessi rýrnun stafi aðalega af því að byrgðahald er rangt. það er ekki kredidt færð skilavara, vörur til eigin nota eru ekki skráðar ofl ofl. Svo eru hér gengi sem eru gerð út til að stela úr búðum ofan á annað. Ég vill bara ekki trúa því að það fólk sem vinnur í þessum búðum sé upp til hópa þjófar...

ólafur (IP-tala skráð) 28.1.2016 kl. 20:43

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

ég er hjartanlega sammála þér Jóhann. En það er reyndar mikið vandamál í íslenskum fyrirtækjum hvað eigendur þeirra eru duglegið við að hirða úr rekstrinu. Bæði fé og vörur sem þeir nota í viðskiptum. Það er í raun þjófnaður. Síðan er búinn til skáldskapur um hvernig vörurýrnunin á sér stað.

Það eru auðvitað eigendur og eða hátt settir starfsmenn sem stjórna bókhaldinu og það væri það síðasta sem þessir menn er að viðurkenna úttektir sínar eða þjófnaði. Því leika þeir þennan fúla leik.

Reyndar eru starfsmenn í verslun alltaf undir eftirliti svo þeir eiga enga möguleika á þessu sem þeir eru ómaklega sakaðir um. Það er ólíklegt að íslenskt launafólk sé þjófóttara en kollegar þeirra erlendis. 

Kristbjörn Árnason, 28.1.2016 kl. 21:06

3 Smámynd: Ómar Gíslason

Þeir sem hola fyrirtækið mest að innan eru eigendur sjálfir en ekki starfsmenn. Eigendur sjálfir eru mjög duglegir við hirða allt út úr fyrirtækinu, bæði með vörukaupum, skemmtiferðum og óhóflegum lifnaði fyrir sjálfan sig, sem þeir láta fyrirtækið borga. Síðan greiða þeir sér síðan út milljarða hagnað út á "gervieign" í bókhaldi eins og t.d. N1 gerir, hjá þeim heitir það "yfirverðsreikningur hlutafjár". Með þessu móti má segja að eigendur sjálfir hola fyrirtækið mest að innanfrá.

Ómar Gíslason, 28.1.2016 kl. 22:23

4 Smámynd: Filippus Jóhannsson

Það sem skrifað hefur verið hér að ofann er rétt það eru eigendurnir sem mestu stela.

Filippus Jóhannsson, 28.1.2016 kl. 22:32

5 Smámynd: corvus corax

Þjófnaður almennra starfsmanna er aðeins brot af rýrnuninni. Eigendur og stjórnendur eiga nánast alla sök á rýrnun, þeir eru hinir raunverulegu þjófar.

corvus corax, 29.1.2016 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband