ÞAÐ ER STUÐNINGURINN Á ALÞINGI SEM SKIPTIR MESTU MÁLI..........

Þó svo að gott sé að hafa stuðning landsmanna, þá vita menn þó að málið hefur meðbyr meðal þjóðarinnar, sem er mikilvægt og gott fyrir sálartetrið.  En "Vinstri Hjörðin" er búin að gefa það út að þau ætli sér að vera á móti þessu þjóðþrifamáli, eins og flestu öðru sem kemur landi og þjóð til góða, þá er eins gott að þeir sem eru með fulla fimm á Þinginu standi saman. 


mbl.is Flugvallafrumvarpið lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

 Má ég spyrja síðuhöfund, hversu oft hann hefur flogið innanlands síðustu 20 ár???

Jónas Ómar Snorrason, 15.2.2016 kl. 10:16

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef nú ekki alveg tölu áa því, en það er talsvert.

Jóhann Elíasson, 15.2.2016 kl. 10:45

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Hefði það skipt síðuhöfund miklu máli tímalega, miðað við búsetu, hvort hann hefði flogið til og frá frá t.d. Keflavík??:)

Jónas Ómar Snorrason, 15.2.2016 kl. 15:56

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Afskaplega litlu.  Ég bý reyndar í Ásbrú, en ég er ekki nema hálftíma að keyra til Reykjavíkur.  Þetta er bara þægilegt skutl sem skiptir ekki nokkru einasta máli. wink

Jóhann Elíasson, 15.2.2016 kl. 16:18

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það setur tilveruna hjá mér ekkert á "hvolf" að keyra þennan spöl. wink

Jóhann Elíasson, 15.2.2016 kl. 17:09

6 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Aha, það setur sem sé tilveruna hjá þér ekki á hvolf, athyglisvert, svo ekki sé meira sagt. Þú ert sem sé í þeim stóra hópi, sem fjarlægðin skiptir ekki máli, hvað flugvöllinn varðar. Þarft einungis að yfirstíga tilfynningar, vana, sem getur verið þrálátur:) Hef eitt ráð, hugsa út fyrir kassann, hefur oft komið sér vel:)

Jónas Ómar Snorrason, 16.2.2016 kl. 00:08

7 identicon

 Burt með flugvöllinn og til Keflavíkur með hann, svo fáum við lest á milli og málið er leyst.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 16.2.2016 kl. 07:41

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jónas Ómar, þetta er einmitt að hugsa útfyrir kassann og Helgi líka - ÞAÐ ER EKKI TIL FJÁRMAGN FYRIR FLUGVELLI ANNARS STAÐAR OG VIÐ VERÐUM BARA AÐ HLÚA AÐ FLUGVELLINUM OG AÐSTÖÐUNNI Í VATNSMÝRINNI ÞAR TIL ÖNNUR STAÐSETNING FYRIR FLUGVÖLLINN ER RAUNHÆFUR MÖGULEIKI.

Jóhann Elíasson, 16.2.2016 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband