EF ÞETTA ER ÞAÐ SEM "VINSTRI HJÖRÐIN" ÆTLAR SÉR AÐ SAMEINST UM - ER EKKI UM AUÐUGAN GARÐ AÐ GRESJA

Ef stjórnmálaferill manneskjunnar er skoðaður, þá kemst hún næst Gunnarsstaða Móra í sviknum loforðum.  En "Vinstri Hjörðin" er með "rörsýn" og gullfiskaminni, þegar stjórnmál og svikin loforð til vinstri eru annars vegar, svo þetta kemur svo sem ekkert á óvart.


mbl.is Veltir fyrir sér forsetaframboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvort litið er til hægri, miðju eða vinstri í stjórnmálum þá er nærsýnin, fjærsýnin eða rörsýnin alltaf til staðar.

En ekki má gleyma Wikileaks skjölum, þar sem kemur fram trúnaðarsamtal íslensks stjórnmálamanns með starfsmanni bandaríska sendiráðsins frá fyrri parts árs 2008.

"Að fleiri innan ákveðins stjórnmálaflokks væru að átta sig á að innganga í ESB væri líklega draumalausnin og eina staðan"

L.T.D. (IP-tala skráð) 3.3.2016 kl. 19:02

2 identicon

Þú mátt ekki segja svona um Katrínu sem er svo ljúf og góð.

Hún hlýtur bara að hafa látið Steingrím og Jóhönnu teyma sig út í fenið og ekki þorað að fylgja "köttunum" að málum, afsegja olíuleit á Drekasvæðinu (grunndvallarstefna V.G. svikin þar), standa fast við ekki ESB stefnuna,krefjast umræðu um Icesave áður en það yrði samþykkt og svo frv.

Þetta hlýtur bara allt að hafa verið öðrum að kenna.

Vest ef hún verður líka svona leiðitöm á forsetastóli.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 3.3.2016 kl. 19:16

3 identicon

Á tímum sem þjóðin krefst umtalsverðra samfélagslegra breytinga, kveða háværar raddir um fyrri sess forsetaembættisins í puntdúkkustíl Vigdísar Finnbogadóttur og fyrirrennara hennar.

Raddir sem hrópa á stjórnarskránna sem gamaldags fyrirbrigði og hrópa á að framkvæmd þrískiptingu valdsins eigi sér aldrei afturkvæmt á Bessastöðum aftur, í formi þeirrar persónu sem nú skipar embættið.

Það er löngu sýnt að þjóðin á ekki og má ekki ráða örlögum sínum.

Og þá löngu sýnt að lýðræði hefur lengi verið fótum troðið á íslandi.

Stuttur tími er til stefnu til að Ísland geti lýst sig sem raunverulegt lýðræðisríki og hafni þeirri gerræðislegu ( fasísku ) stefnu sem alþjóðavæðingin er.

L.T.D. (IP-tala skráð) 3.3.2016 kl. 20:09

4 identicon

Alveg sama hvaða öfl sem íslenska þjóðin hefur þurft að þola, hvort sem það eru vinstri, miðju eða hægri öfl ( fjórflokkurinn ) þá hefur íslenska þjóðin límst meira og meira við alþjóðlegt og yfirþjóðlegt vald.

Vald sem gengisfellur fullveldi þjóðarinnar í öllum liðum/þáttum fullveldis.

" Mark my words "

Í næsta efnahagshruni mun ríkisstjórn íslands þurfa hjálp erlends herliðs til að halda " lögum og lofum/reglu "

Undirbúningur og upphaf alþjóðavæðingar íslands verður ekki um kennt í sögulegu samhengi.

Heldur hversu þvermóðskulegir íslendingar voru til að beygja sig og bugta fyrir erlendu valdi.

L.T.D. (IP-tala skráð) 3.3.2016 kl. 21:10

5 identicon

Eygló Harðardóttir

Jöfnuður á Íslandi eykst

"4.3 2016 @ 00:29 ...bíður samþykktar " ( ummæli )

Jöfnuður er að aukast með tilfærslum frá sannleika í/á lygi eins og stjórnmálamönnum er tamt?

Atvinnuleysi byggjast á þeim tölum sem falla af atvinnuleysisbótum vegna reglna fyrri ríkisstjórnar, en fólk er samt sem áður í sömu sporum?

Vanskil hafa stórminnkað vegna fjölda fjölskyldna sem hafa verið gerðar gjaldþrota?

En samt sem áður þurfa greiða hýtina?

Hverjar eru hinar raunverulegar tölur um raunverulegt réttlæti á Íslandi?

Er óréttlætið falið á bakvið 110 ára leyndarlög sem síðasta ríkisstjórn ákvað?

https://www.youtube.com/watch?v=HH6WQBsG8BI

L.T.D. (IP-tala skráð) 4.3.2016 kl. 00:35

6 identicon

Hvers vegna " fjórða valdið " heldur hlífifkyldi yfir svokallaðri " leiðréttingu húsnæðislána " sem fólst í því að vaxtabætur hurfu og betur var heima setið en farið af stað í þeim efnum.

Það segir okkur ýmislegt um þá geigvænlegu spillingu á Íslandi ...

L.T.D. (IP-tala skráð) 4.3.2016 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband